Rússar ítreka andstöðu sína við eldflaugavarnarkerfi 9. júní 2007 14:18 Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, er hér ásamt starfsbróður sínum frá Srí Lanka. MYND/AP
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ítrekaði í dag varnaðarorð rússneskra stjórnvalda vegna fyrirhugaðs eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu. Hvatti hann Bandaríkjamenn til að fresta allri uppbyggingu kerfisins til frekari rannsókna, ellegar gæti það flækt alvarlega deiluna við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. Eins og fram hefur komið í fréttum áforma Bandaríkjamenn að byggja upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi og Tékklandi og segjast þeir gera það til þess að geta varist árásum frá Íran og Norður-Kóreu. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, brást um síðustu helgi illa við hugmyndunum og hótaði að beina kjarnorkueldflaugum Rússa að evrópskum ríkjum ef Bandaríkjamenn létu ekki af þessum áformum sínum. Á fundi í Þýskalandi í vikunni lagði Pútín svo til þá lausn í málinu að Rússar og Bandaríkjamenn notuðu saman ratstjárstöð í Aserbaídjad sem á landamæri að Íran. Bush Bandaríkjaforseti sagðist opinn fyrir hugmyndinni en lýsti því svo yfir í gær í Póllandi að stefnt yrði áfram að uppbyggingu eldflaugavarnarkerfisins. Haft er eftir Seregi Lavrov í rússneskum fjölmiðlum í dag að Bandaríkjamenn ættu að fresta áformunum þar sem þau muni einungis flækja deilurnar um kjarnorkuáætlun Írana. Vesturveldin og Írana greinir á um áætlunina og segja Bandaríkjamenn hana yfirskin til þróunar kjarnavopna en Íranar segjast aðeins ætla að nota kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. Sameinuðu þjóðirnar hafa þegar beitt Írana refsiaðgerðum fyrir að neita að hætta að auðga úran sem nota má í kjarnorkuvopn.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Fleiri fréttir Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Sjá meira