Útlit fyrir átök í Líbanon 24. nóvember 2007 12:56
Útlit er fyrir hörð átök í Líbanon á næstu dögum. Emil Lahoud, forseti landsins, lét af embætti í gærkvöldi og enginn skipaður í hans stað. Stríðandi fylkingum á þingi tókst ekki að velja nýjan forseta og hvetur Lahoud herinn til að grípa til sinna ráða. Þar með hefur Lahoud, bandamaður Sýrlendinga, í raun lýst yfir neyðarástandi í landinu. Hann hvatti her landsins til að taka völdin. Óttast margir að tvær stríðandi fylkingar í landinu eigi ekki eftir að sættast á eftirmann og þá verði önnur ríkisstjórn skipuð til höfuðs þeirr sem nú ræður og nýtur stuðnings vesturveldanna. Önnur fylkingin á þingi styður Sýrlendinga að málum en er í minnihluta. Hinn hópurinn er andvígur afskiptum ráðamanna í Damaskus af innaríkismálum Líbana. Sýrlendingar kölluðu herlið sitt heim frá Líbanon 2005 og lauk þar nær þrjátíu ára yfirráðum þeirra. Andstæðingar Sýrlendinga náðu meirihluta á þingi sama ár en Lahoud hélt samt í embættið. Ekki tókst að þvinga hann til afsagnar. Nú er landið á forseta í annað sinn síðan 1943 þegar Líbanon fékk sjálfstæði frá Frökkum. Síðast gerðist það 1988 en þá geisaði blóðug borgarastyrjöld í landinu sem hafði staðið frá 1975 og lauk ekki fyrr en 1990. Þinginu tókst þá ekki heldur að velja forseta og blossuðu þá upp hörð átök - einhver þau mannskæðustu á tímabilinu. Óttast margir að til átaka komi aftur nú. Lahoud var harorður í garð vesturveldanna þegar hann fór úr forsetahöllinni í gærkvöldi. Hann sakaði Bandaríkjamenn og Frakka um afskipti af innanríkismálum Líbana. Á sama tíma sagði ráðherra í ríkisstjórninni brothvarf hans gleðiefni. Sýrlendingar hefðu þvingað þennan forseta upp á líbönsku þjóðina og nú væri hann hættur.
Mest lesið Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent „Kannski var þetta prakkarastrik“ Innlent Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Innlent Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Erlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Fleiri fréttir Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Sjá meira