Rætt um listir í skólakerfinu 20. apríl 2007 06:45 Rætt verður um ólíkar áherslur í kennslustarfi og möguleika listnámskennslu í öðru skólastarfi á námstefnu í dag.
Myndlistarskólinn í Reykjavík gengst fyrir námstefnu um möguleika listnámskennslu í almennu skólastarfi í dag og á morgun. Yfirskrift stefnunnar er „KnowHow” en að því verkefni standa listaskólar í fjórum Evrópulöndum. Verkefnið leitast við að draga fram og kynna þá nálgun í námi og kennslu sem tíðkast á verkstæðum listaskóla og hvernig nýta má þær áherslu og aðferðir í almennu skólastarfi, einkum til hagsbóta fyrir þá nemendur sem ekki njóta sín í námi sem byggir helst á lestri texta. Sérstakir gestir námstefnunnar verða fræðimennirnir Maureen K. Michael frá Glasgow School of Art og Rita Irwin frá háskólanum í Bresku-Kólumbíu í Kanada en báðar hafa þær verið virkar í alþjóðlegri umræðu um listir og sköpun í menntakerfinu. Námstefnan fer fram á ensku og er einkum ætluð kennurum og skólastjórnendum en einnig fag- og áhugafólki á sviði menntunar-og menningarmála. Stefnan fer fram í húsakynnum Myndlistarskólans og ReykjavíkurAkademíunnar í JL-húsinu við Hringbraut.
Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Lífið samstarf Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira