Íslendingar keyptu byggingu í London fyrir 10 milljarða Gunnar Valþórsson skrifar 14. júní 2007 10:42 MYND/Carl De Souza
Íslenskir fjárfestar keyptu nýverið sögufræga byggingu í Belgravia hverfinu í Lundúnum fyrir rúma tíu milljarða íslenskra króna. Húsið var upphaflega byggt sem íbúðarhús en frá lokum seinna stríðs hýsti húsið breska Rauða krossinn. Íslendingarnir hyggjast breyta húsinu í íbúðarhús að nýju og innrétta þar 14 lúxusíbúðir. Það er fyrirtækið Zegna III Holdings sem hefur keypt húsið að því greint er frá í breska fasteignablaðinu Property Week. Í blaðinu er fyrirtækið sagt vera í eigu Íslendinga en skráð erlendis. Heimilisfang byggingarinna er 3-10 Grosvenor Crescent og keyptu Íslendingarnir eignina af fjárfestingafyrirtækinu Blackstone. Blackstone keypti bygginguna í nóvember 2005 af fyrirtækinu Grosvenor og breska Rauða krossinum fyrir tæpa fjóra milljarða króna og hafa því ávaxtað pund sitt vel. Blackstone fékk leyfi hjá byggingayfirvöldum til að breyta byggingunni í íbúðarhúsnæði að nýju en Rauði krossinn hafði nýtt það undir skrifstofur síðan í seinna stríði. Zegna III Holdings hyggst innrétta 14 lúxusíbúðir í húsinu enda er það í einu dýrasta hverfi borgarinnar þar sem mjög fínt þykir að búa. Búist er við að íbúðirnar, sem saman telja um sex þúsund fermetra, verði tilbúnar árið 2009.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Fleiri fréttir Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Sjá meira