Ný störf á Ísafirði 8. mars 2007 04:45 Undanfarið hafa borist miður góð tíðindi frá Ísafirði vegna lokunar starfsstöðvar Marels, rannsóknarstofunnar Agar og uppsagna starfsmanna Símans. Það segir sig sjálft að Ísfirðinga og Vestfirðinga munar um þessi störf. Kallað er eftir aðstoð stjórnvalda að bregðast við og gera eitthvað í málinu, svo sem að færa störf úr opinbera geiranum vestur á firði. Þingmenn harma ástandið en koma ekki með lausnir. Ísfirðingar verða að vinna að lausnum sinna mála í samvinnu við ríkisvaldið og fyrirtækin á staðnum. Að búa til störf á heimavelli tryggir væntanlega að þau störf verða ekki flutt burtu með einu pennastriki. Hægt er með góðum vilja ríkisvaldsins, sveitarfélagsins og sjávarútvegsfyrirtækjanna á staðnum að búa til störf sem byggja á því sem Ísfirðingar hafa í túnfætinum hjá sér, hafinu. Það þarf að gera sér grein fyrir þeim möguleikum sem liggja í auðlindum hafsins. Hvað Vestfirði áhrærir þá tel ég mikla framtíðarmöguleika fólgna í því að koma upp vel skilgreindu og markvissu rannsóknar- og þróunarstarfi í sambandi við fiskeldi í sjó. Möguleikarnir á umtalsverðu fiskeldi á hefðbundnum tegundum og öðrum tegundum í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi eru augljóslega fyrir hendi. Þetta eru djúpir og miklir firðir með miklu magni sjávar sem fer þar í gegn. Nú þegar er umtalsvert starf unnið í Ísafjarðardjúpi í fiskeldi. Ég tel að nú sé lag til þess að virkja þann möguleika sem felst í því að setja á stofn rannsóknar- og þróunarmiðstöð fyrir fiskeldi í sjó (og þá er ekki átt við laxfiska) og byggja á því rannsóknar- og þróunarstarfi sem þegar hefur verið unnið í Ísafjarðardjúpi, á Patreksfirði, Tálknafirði og í Arnarfirði. Æskilegt væri að ríkisvaldið með sínar mennta- og rannsóknarstofnanir, ásamt sveitarfélaginu og sjávarútvegsfyrirtækjunum á Vestfjörðum, sameinuðust um stofnun slíks seturs. Þetta þyrfti að gerast í tengslum við háskólasamfélag og er þá nærtækast að huga að eflingu háskólaseturs á Ísafirði meðal annars með þetta í huga. Þessi rannsóknar- og þróunarvinna á ekki að miðast einungis við eldi á fiskum heldur líka líftækni. Þróun og rannsóknir í þágu líftækniiðnaðar sem byggist á auðlindum hafsins er óplægður akur. Það er ekki ólíklegt að rannsóknar- og þróunarstofnun sem þessi verði einnig til þess að störf skapist í hátækniiðnaði sambærileg við þau störf sem eru að hverfa frá Ísafirði. Tækifærin liggja víða, það er bara að koma auga á þau og láta til skara skríða. Fleira gefur af sér en álver. Höfundur er í hópi Margrétar Sverrisdóttur sem ásamt fleirum vinnur að stofnun nýs framboðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar