Innlent

Stolinn keppnishestur fannst undir kvöld

Keppnishesti var stolið úr hesthúsi í Hafnarfirði einhvern tíma í nótt, og svo virðist sem unglingar hafi verið að verki. Hesturinn fannst um sexleitið í dag. Eigendur hestsins segja að lögregla hafi yfirheyrt þrjá unglinga, sem hefðu verið í samkvæmi í sumarbústað í grenndinni í gærkvöldi, og að í kjölfarið hafi hesturinn fundist. Þá voru hesteigendur í hesthúsabyggðinni í Sörlaskreið búnir að vera að leita að hestinum í allan dag. Sandra Líf Þórðardóttir knapi hestsins teymdi hann þriggja kílómetra leið að hesthúsinu, þaðan sem hann fannst. Hún sagði að sér hefði létt mikið þegar hesturinn fannst. Hann var dálítið bólginn um munnvikin og afar þyrstur, en að öðru leiti virtist ekkert ama að honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×