Erlent

Minnst 30 fórust í sprengingum í Egyptalandi

Að minnsta kosti 30 fórust og um 150 særðust í þremur sprengingum í ferðamannabænum Dahab í Egyptalandi síðdegis í dag.

Vitni segja mikinn reyk leggja frá vettvangi, þar sem algjör skelfing hafi gripið um sig og út um allt megi sjá fólk á hlaupum. Tugir lögreglu- og sjúkrabíla eru þegar komnir á vettvang.

Í júlí í fyrra fórust rúmlega 60 manns í sprengjuárás á ferðamannastaðinn Sharm al-Sheik í Egyptalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×