Fótbolti

Basten kallar á tvo unga leikmenn

Basten er í vandræðum með meiðsli
Basten er í vandræðum með meiðsli MYND/AFP

Marco van Basten, landsliðsþjálfari Hollands, hefur kallað á 2 unga leikmenn inní hóp Hollands. Nigel de Jong og Stijn Schaars, ungir leikmenn úr 21 árs liði Hollendinga, munu æfa með Hollendingum og verða tilbúnir að koma inn í hópinn, en Hollendingar hafa átt í miklum meiðslavandræðum upp á síðkastið.

Wesley Sneijder, Kew Jaliens, Philip Cocu, Rafael van der Vaart og Giovanni van Bronckhorst hafa allir átt við meiðsli að stríða og óvísst hvort að þeir verði komnir í nægjanlegt form fyrir HM. Van Basten hefur frest fram á Laugardag til þess að velja lokahóp Hollands, en Hollendingar mæta Serbíu & Svartfjallalandi í sínum fyrsta leik á Sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×