Tilfinningatónleikar hjá Láru 13. júlí 2006 09:30 Lára Rúnarsdóttir. Lára segist ekki vita hvort hún muni syngja á ensku eða íslensku í framtíðinni. MYND/Hrönn
Lára Rúnarsdóttir heldur tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld í tilefni af útkomu plötu hennar Þögn. Við unnum að plötunni allt síðasta sumar. Svo fór hún í smá bið því það eru svo margir sumarsmellir á henni, segir Lára hlæjandi. Annars er þetta er svona lágstemmd melódísk tilfinningaplata svona tilfinningamúsík. Tólf lög eru á plötunni og eru þau öll eftir Láru. Flest þeirra eru sungin á íslensku. Lára gaf út plötuna Standing Still fyrir þremur árum en þá söng hún einungis á ensku. Ég sem alltaf á ensku en ákvað að breyta til fyrir nýju plötuna og semja nýja íslenska texta við lögin. Það gekk í 60-70 prósentum tilvika. Hin lögin urðu bara óþjál og því eru þau á ensku, segir Lára en á nýju plötunni syngur hún mikið um sínar daglegu hugsanir. Á þeim tíma sem ég var að semja lögin var ég að velta fyrir mér ýmsum spurningum sem ég skildi ekki þá en skil betur í dag. Lára lék á nokkrum tónleikum í Los Angeles fyrir skömmu og gekk að eigin sögn nokkuð vel. Ég spilaði á svona litlum sætum klúbbum í Hollywood. Það gekk rosalega vel og fór í reynslubankann. Það er ágætt að spila fyrir aðra en nánustu vini og fjölskyldu, segir Lára sem er á leið til Spánar sem skiptinemi en hún er í tónlistarkennaranámi í Kennaraháskóla Íslands. Bræðurnir Birkir og Daði Birgissynir, úr hljómsveitinni Jagúar, unnu með Láru að plötunni sem og trommuleikarinn Kiddi, sem áður var í Hjálmum, og bassaleikarinn Pétur Sigurðsson. Þeir munu allir spila með Láru á tónleikunum í kvöld sem hefjast kl. 21.
Menning Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Laufey á landinu Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira