Björgvin í Laugardalshöllina 11. ágúst 2006 14:30 Án efa verður um magnaðan tónlistarviðburð að ræða í höllinni 23. september nk. og ógleymanlega kvöldstund fyrir þá heppnu sem ná að tryggja sér miða í tæka tíð.
Laugardaginn 23. september kl. 20:00 verður efnt til sannkallaðra stórtónleika í Laugardalshöll þar sem Björgvin Halldórsson flytur úrval laga úr efnisskrá sinni ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands, Fóstbræðrum, Hljómsveit Björgvins, bakröddum og nokkrum landsþekktum gestum. Sérstaklega verður vandað til tónleikanna á allan hátt og má telja líklegt að um verði að ræða einu umfangsmestu tónleika sem ráðist hefur verið út í hérlendis með íslenskum listamanni. Án efa verður um magnaðan tónlistarviðburð að ræða og ógleymanlega kvöldstund fyrir þá heppnu sem ná að tryggja sér miða í tæka tíð. Mikið einvala lið listamanna kemur að tónleikunum. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson, Þórir Baldursson útsetur fyrir hljómsveit og kór og Hrafnkell Orri Egilsson útsetur forleik tónleikanna sem byggður er á lögum eftir Björgvin. Hrynsveit Björgvins, sem leikur ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands, skipa þeir Benedikt Brynleifsson, Róbert Þórhallsson, Þórir Baldursson, Þórir Úlfarsson, Vilhjálmur Guðjónsson, Matthías Stefánsson og Tatu Kantoma. Bakraddir skipa þau Friðrik Ómar, Regína Ósk, Eyjólfur Kristjánsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Gestir Björgvins verða meðal annars börn hans, Svala og Krummi, ásamt fleirum. Fjölmargir aðrir koma að undirbúningi tónleikanna og má búast við að vel á annað hundrað manns taki þátt í þeim á einna eða annan hátt. Miðasalan hefst fimmtudaginn 24. ágúst kl. 10:00. Laugardalshöllinni hefur verið skipt upp í tvö verðsvæði, sal og stúku, aðeins verður selt í númeruð sæti og um mjög takmarkað miðaframboð að ræða. Nánar verður tilKynnt um miðasölu innan skamms, en það skal tekið fram að aðeins verður um þessa einu tónleika að ræða og því vissara fyrir áhugasama að tryggja sér miða strax. Þeir sem hafa fylgst með einstökum söngferli Björgvins Halldórssonar, allt frá því að hann var kosinn poppstjarna Íslands í Laugardalshöll í september 1969, telja það löngu tímabært - og um leið skemmtilega tilviljun - að hann stigi aftur á það sama svið í Höllinni og nú í fylgd með Sinfóníunni og mörgun fremstu tónlistarmönnum landsins. Frá því undraverða ári 1969, þegar síðhærð ungmenni flykktust til Woodstock og maðurinn steig fæti fyrst á Tunglið, hefur Björgvin Halldórsson unnið að tónlist sinni af þeim metnaði og elju sem einkennir þennan ástríðufulla dugnaðarfork úr Hafnarfirði. Hann hefur staðið í farbroddi í íslenskri dægurtónlist, ekki aðeins sem afkastamikill söngvari á meira en 500 hljóðritunum, heldur einnig sem lagahöfundur, upptökustjóri og hljómplötuframleiðandi. Björgvin Halldórsson er löngu orðinn þjóðsagnapersóna fyrir snaggaralegar athugasemdir sínar um menn og málefni, hann er hafsjór af fróðleik um tónlist frá öllum tímum, hann er mikill náttúruunnandi og lífskúnstner, en fyrst og fremst er hann fagmaður í tónlist. Björgvin hefur fyrir löngu skipað sér á bekk með fremstu tónlistarmönnum okkar og hann hefur haft afgerandi áhrif á samtíð sína og þann stóra hóp tónlistarfólks sem hefur unnið með honum í gegn um árin. Bakhjarl tónleikanna er Alcan í Straumsvík í tilefni af 40 ára afmæli ISAL.
Lífið Menning Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira