Skór og Dolce & Gabbana í miklu uppáhaldi 15. júlí 2006 11:00
Spáir þú mikið í tískuna? Ég hef gaman af því að fylgjast með tískunni og fá þannig hugmyndir að fatnaði og stíl. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Mér líður best í þægilegum fötum og einhverju sem klæðir mig vel enda er ég oftast í gallabuxum, hettupeysu og strigaskóm. Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki? Dolce & Gabbana. Ef ég ætti endalaust af peningum væri fataskápurinn minn fullur af fatnaði frá þeim. Flottustu litirnir? Grænn er svolítið uppáhalds, sérstaklega í kjólum og bolum. Þessa dagana klæðist ég líka mikið hvítu, enda er það klassískur sumarlitur. Hverju ertu veikust fyrir? Ég er alveg skósjúk. Ég hef ekki einu sinni hugmynd um hversu mörg pör ég á og ég er í algerum vandræðum með geymslupláss fyrir þau öll. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég keypti mér hvítan leðurjakka í Kringlunni fyrir útskriftina mína. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Ég er ánægð með kjólatískuna sem er í gangi. Mér finnst algert möst að eiga flotta kjóla á sumrin og maður á að vera duglegur að nota þá þrátt fyrir leiðinlegt veður. Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir sumarið? Ég á eflaust eftir að kaupa mér fleiri kjóla og jafnvel hvítar buxur. Svo er aldrei að vita nema maður kaupi sér nokkur skópör, svona í tilefni sumarsins. Uppáhaldsverslun? Urban Outfitters er mín uppáhaldsverslun. Ég skil ekki af hverju hún er ekki komin til Íslands, ég held hún myndi slá í gegn hér. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Það er mjög mismunandi. Ég versla mest erlendis og eftir góðar verslunarferðir getur VISA reikningurinn minn orðið ansi hár. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Ég gæti ekki verið án allra gallabuxnanna minna. Ég er rosalega mikið í gallabuxum og á þær í öllum helstu litum og gerðum. Uppáhaldsflík? Sumarkjóllinn minn frá Dolce & Gabbana sem ég keypti mér á Spáni síðasta sumar. Hann er hvítur með bláu, svörtu og grænu mynstri og rosalega þröngur. Ég nota hann ekki oft, en hann er samt algert uppáhald. Hvert myndir þú fara í verslunarferð? Klárlega til New York. Ótrúlega skemmtileg borg og endalaust af flottum búðum. Það er mjög auðvelt að missa sig í verslunarsýkinni þar. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Ég keypti mér einu sinni fáránlega ljóta hælaskó í einhverri búð í L.A. Þeir voru bleikir, með krókódílaleðursmynstri úr ógeðslegu plastefni. Ég veit ekki hvað hljóp í mig þegar ég festi kaup á þeim. Ég á þá ennþá inni í skáp en hef aldrei notað þá.
Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Billie Eilish gegndi mikilvægu hlutverki á stóra degi bróður síns Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira