Togstreita milli Blair og Brown 7. maí 2006 12:00
Togstreitan á milli þeirra Tony Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og Gordons Brown, fjármálaráðherra, hefur náð nýjum hæðum eftir útreiðina sem Verkamannaflokkurinn fékk í sveitarstjórnarkosningunum á Englandi í síðustu viku. Stuðningur þingmanna breska Verkamannaflokksins við Tony Blair forsætisráðherra virðist fara óðum þverrandi. Dagblaðið Independent birti í morgun bréf undirritað af 50 þeirra þar sem skorað er á Blair að lýsa því yfir áður en sumarleyfi þingmanna hefjast hvenær hann hyggist eftirláta Gordon Brown fjármálaráðherra völdin í ríkisstjórninni. Blair hefur hingað til sagt ætla sitja sem fastast út kjörtímabilið en úrslitin í ensku sveitarstjórnarkosningunum þar sem Verkamannaflokkurinn tapaði miklu fylgi hafa veikt stöðu hans innan flokksins. 70 þingmenn þarf til að knýja fram leiðtogakjör. Í viðtali á BBC í morgun varaði Brown samherja í flokknum við að fremja hallarbyltingu, slíkt væri ávísun á algera sundrungu. Í staðinn hvatti hann til samstöðu og benti á að viðræður á milli þeirra Blairs um "endurnýjun í flokknum," eins og hann sjálfur orðaði það væru þegar í gangi. Þingmenn Verkamannaflokksins hittast á morgun í þinghúsinu í Westminster og ræða úrslit kosninganna fyrir helgi. Búist er við að hörð hríð verði gerð að forsætisráðherranum þar. Ekki virðast öll kurl komin til grafar í hneykslismálunum sem skekið hafa flokkinn undanfarið því Sky-sjónvarpsstöðin greindi frá því í morgun að Scotland Yard rannsakaði nú hvort John Prescott aðstoðarforsætisráðherra hefði gerst brotlegur við lög með því að hafa samræði við hjákonu sína Tracy Temple í stjórnarskrifstofunum í Whitehall, en í landslögum er sett blátt bann við slíkri hegðan hjá embættismönnum við skyldustörf.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira