Íraksstríðið dýrara en stríðið í Víetnam 28. apríl 2006 19:45
Allt stefnir í að kostnaður Bandaríkjamanna vegna stríðsrekstrarins í Írak verði meiri en við Víetnamstríðið. Samanlögð útgjöld vegna hernáms Afganistans og Íraks nema um 60 þúsund milljörðum króna. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri skýrslu sem rannsóknarstofnun á vegum Bandaríkjaþings kynnti í vikunni þar sem heildarkostnaður við hernámið í Írak er metinn. Nú þegar hefur rúmlega 23 þúsund milljörðum íslenskra króna verið varið til þess. Þau útgjöld fara ekki minnkandi því á þessu ári er gert ráð fyrir að þau verði 7.500 milljarðar, samanborið við 3.800 milljarða árið 2003, þegar ráðist var inn í landið. Upphæðirnar sem um ræðir eru nánast óskiljanlegar, en reynum samt að setja þær í samhengi. Hvern einasta dag nemur beinn kostnaður við hernámið 200 milljónum dala eða rúmum 14 milljörðum íslenskra króna . Það jafngildir rekstrarkostnaði allra framhaldsskóla Íslands á þessu ári. Þessar tölur eru í miklu ósamræmi við þær bjartsýnu spár sem lagt var upp með í upphafi. Donald Rumsfeld, landvarnaráðherra, reiknaði með heildarútgjöldum upp á 3.700 milljarða. Paul Wolfowitz, þáverandi aðstoðarlandvarnaráðherra, gekk meira segja svo langt að segja að olíusölutekjur Íraka myndu á augabragði þýða að uppbyggingin myndi skila hagnaði. Í dag eru 130.000 bandarískir hermenn í Írak og stefnir Bandaríkjastjórn að því að hefja heimkvaðningu þeirra sem fyrst. Höfundar skýrslunnar segja að þótt brottflutningurinn muni ganga hratt og vel fyrir sig þá verði heildarkostnaðurinn við hernaðinn rúmir 50 þúsund milljarðar króna. Það er 10 þúsund milljörðum hærri upphæð en varið var til hins átta ára langa Víetnam-stríðs. Þegar við bætist svo 9 þúsund milljarða króna reikningur fyrir hernám Afganistans er ekki að undra að þorra Bandaríkjamanna blöskri yfir fjáraustrinum.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira