Al-Qaida lætur að sér kveða 1. mars 2005 00:01
Osama bin Laden reynir nú að fá hryðjuverkaleiðtogann al-Zarqawi í Írak til að skipuleggja árásir á bandarísk skotmörk. Al-Qaida hefur lýst ábyrgð á sjálfsmorðsárásinni í Hilla í gær á hendur sér, þar sem minnst 125 létust. Fórnarlömb mannskæðustu árásar í landinu síðan Saddam Hussein var steypt af stóli voru borin til grafar í dag. 125 fórust og meira en 130 særðust. Hópur sem segist vera á vegum al-Qaida í Írak lýsti yfir ábyrgð á árásinni á íslamskri vefsíðu. Nýlegar upplýsingar frá bandarísku leyniþjónustunni herma að Osama bin Laden og hryðjuverkamaðurinn Abu Musab al- Zarqawi, leiðtogi al-Qaida í Írak, hafi átt í samskiptum að undanförnu og að bin Laden hafi hvatt al-Zarqawi til að skipuleggja árásir á bandarísk skotmörk. Al-Zarqawi hefur staðið á bak við fjölda árása í Írak og vísbendingar eru um að hluti samtaka hans starfi víðar. Hann hefur lýst hollustu við al-Qaida en er ekki sagður sammála bin Laden að öllu leyti. Richard Clarke, sem var einn æðsti maður í hryðjuverkateymi Hvíta hússins, segir að þetta skuli taka alvarlega. Almenningi í Bandaríkjunum hafi verið talin trú um það á undanförnum þremur árum að ekki yrðu gerðar fleiri árásir á Bandaríkin og hann telji að þegar slíkt viðhorf sé við lýði muni önnur bylgja árása ríða yfir. Ekki munu þó áætlanir uppi um að auka viðbúnað vegna þessa en skýrslu um málið hefur verið dreift í bandaríska stjórnkerfinu. Frönsk blaðakona, sem saknað hefur verið í sjö vikur, birtist í dag á myndbandi sem uppreisnarmenn í landinu sendu frá sér og bað um hjálp. Ekki hefur tekist að staðfesta uppruna myndbandsins eða aldur. Utanríkisráðherra Frakklands sagði í dag að málið yrði rannsakað nánar og allt gert til að hjálpa blaðakonunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Innlent Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ Innlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent Fleiri fréttir Afskaplega mjótt á munum í kosningunum „Köngulóarvefur“ sem skrifað verður um í sögubókum Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Um þrjátíu drepin í árás nærri dreifingarmiðstöð hjálpargagna Hamas svarar vopnahléstillögunni sem Ísraelar hafa samþykkt Zion sakaður um tvær nauðganir, heimilisofbeldi og líflátshótanir Afar mjótt á munum hjá forsetaframbjóðendum í Póllandi Ryður leiðina fyrir Trump til að vísa hálfri milljón úr landi Leita „Skrattans í Ozarkfjöllum“ í hellum og skógum Fleiri ákærur væntanlegar í Liverpool Vísuðu til rannsókna sem voru ekki til í „heimsklassa“ skýrslu Enn hætta á flóðum þar sem heilt þorp hvarf í aurskriðu Sagði Diddy hafa nauðgað sér Russell Brand lýsir yfir sakleysi sínu Vestræn ríki niðurgreiða stríðsrekstur Rússa í Úkraínu Kærir Costner fyrir „ofbeldisfulla óundirbúna“ nauðgunarsenu Hamas hafna líklegast vopnahléstillögu Trump Lífstíðarfangelsi fyrir að selja dóttur sína Ísrael samþykkir vopnahlé Trumps Ákærður fyrir að keyra á hóp fólks í Liverpool Störfum Musk lokið hjá DOGE Skortir fólk til framleiðslu hergagna í Evrópu Heilt þorp varð undir aurskriðu í Sviss Boða nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Segir Ísraelsher hafa myrt leiðtoga Hamas Tuttugu ára fangelsisvist fyrir kynferðisbrot gegn 299 börnum Merz lofaði Selenskíj aðstoð við langdrægar skotflaugar Vísaði frá máli gegn orkurisa vegna bráðnunar jökla Á góðri leið með loftslagsmarkmið standi ESB-ríki við sitt Náðar raunveruleikastjörnur sem sviku tugmilljónir dala út úr bönkum Sjá meira