Umhverfissinnar áfrýja skyrslettudómi Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. desember 2005 06:00
Ólafur Páll Sigurðsson, sem ásamt Örnu Ösp Magnúsardóttur hefur verið dæmdur fyrir að sletta grænlituðu skyri á ráðstefnugesti á Hótel Nordica í sumar, segir líklegt að dómnum verið áfrýjað. "Frestur til þess er ekki liðinn þar sem enn á eftir að birta okkur dóminn," segir hann. Dómurinn var kveðinn upp 31. október í Héraðsdómi Reykjavíkur, en frá því að dómar eru birti hefur fólk þrjár vikur til að áfrýja. Hvorki Ólafur Páll né Arna Ösp voru viðstödd uppkvaðninguna og því þarf stefnuvottur að birta þeim dóminn. Ólafur Páll og Arna Ösp fengu samhljóðandi tveggja mánaða fangelsisdóm, sem hjá báðum var skilorðsbundinn í tvö ár. Þá var þeim gert að greiða hótelinu þar sem ráðstefnan var haldin 362.245 krónur í bætur og svo málsvarnarlaun sem samtals nema tæpum 600 þúsund krónum hjá báðum. Bretinn Paul Geoffrey Gill var líkt og Ólafur Páll og Arna dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína, en sá dómur gekk í byrjun júlí. Miklu munar þó bótakröfum í máli hans og máli þeirra. Í báðum málum var ákært fyrir stórfelld eignaspjöll, en í máli Pauls voru skemmdir metnar á tæpar 2,9 milljónir króna. Bótakröfum var þó vísað frá í máli hans þar sem hann játaði brot sitt greiðlega, en efaðist um bótakröfuna. Í slíkum tilvikum eru bótakröfur ekki látnar tefja dómsuppkvaðningu. Þegar málarekstur á hendur Ólafi Páli og Örnu hófst kom hins vegar í ljós að skemmdir af völdu skyrslettnanna höfðu verið stórlega ofmetnar og hlutir sem áður voru sagðir ónýtir reyndust bara þurfa á hreinsun að halda. "Við ákvörðun refsingar ákærðu er litið til þess að brot þeirra voru framin af eindregnum ásetningi og bera gögn málsins og framburður þeirra fyrir dómi með sér að aðgerðin var fyrir fram skipulögð," segir í dómnum sem Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp. Með því að sprauta grænu skyri á álráðstefnunni vildi fólkið mótmæla meintum umhverfisglæpum álfyrirtækja víða um heim og vekja athygli á þeim.
Birtist í Fréttablaðinu Innlent Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira