Íhaldssamur maður kenningarinnar 19. apríl 2005 00:01
Joseph Ratzinger fæddist í smábænum Markl am Inn syðst í Bæjaralandi þann 16. apríl 1927. Fjórtán ára gamall var hann skráður gegn vilja sínum í Hitlersæskuna, sem nasistar skylduðu alla þýska drengi til, en var fljótlega sleppt úr henni þar sem hann var þá þegar kominn á þá braut að læra til prests. Undir lok stríðins mannaði hann loftvarnabyssur við München eins og aðrir landar hans á sama aldri, en hann hafði ekki lokið grunnherþjálfun þegar ófriðurinn var úti. Innan kirkjunnar skiptast menn mjög í tvö horn í afstöðu til Ratzingers. Fylgismenn hans segja að reynsla hans af uppvexti í Þýskalandi nasismans hafi innrætt honum sannfæringu fyrir nauðsyn þess að kirkjan láti að sér kveða og kirkjan standi vörð um sín gömlu gildi. Gagnrýnendur hans segja hann standa fyrir harðlínustefnu innan kirkjunnar. Ratzinger hlaut prestsvígslu árið 1951, 24 ára gamall, og var strax 1953 orðinn háskólakennari í kaþólskri guðfræði. Hann átti farsælan feril sem guðfræðiprófessor í nokkrum þýskum háskólum uns hann var árið 1977 skipaður biskup í München og kardináli þremur mánuðum síðar. Jóhannes Páll II páfi kallaði Ratzinger til starfa í Páfagarði og árið1981 var hann orðinn yfirmaður trúarráðs kaþólsku kirkjunnar sem "vakir yfir kenningunni", en þetta er eitt allra áhrifamesta embættið í Páfagarði. Á þessum langa tíma í Róm hefur Ratzinger haft mótandi áhrif á stefnu kirkjunnar. Hann skapaði sér orðstír fyrir stranga íhaldssemi í útleggingu guðsorðsins, en jafnframt fyrir að vera skarpgreindur hugsuður. Hann og hinn pólski Jóhannes Páll II voru nánir bandamenn í íhaldssamri túlkun kenningarinnar, en meðal þess sem eftir samstarf þeirra liggur er kenningakver (svonefndur katekismi) kirkjunnar sem út kom árið 1992. Í því riti er rétttrúnaðarlínan lögð sem öllum kirkjunnar mönnum er ætlað að fara eftir. Ratzinger komst snemma upp á kant við meirihluta trúsystkina sinna í heimalandinu. Reyndar herma fregnir að svo til allir hinir þýsku kardinálarnir, sem sátu kjörfund páfa, hafi ekki viljað sjá þennan landa sinn á páfastóli. Nærri fimm aldir eru síðan Þjóðverji var síðast páfi. Margir rekja það til Ratzingers að frá Róm komu tilskipanir um að kaþólskum prestum í Þýskalandi væri bannað að veita þunguðum unglingsstúlkum ráðgjöf og um að kaþólskum unglingum skyldi ekki heimilt að fermast í sameiginlegri guðsþjónustu með lútherskum nágrönnum árið 2003.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Sjá meira