Erlent

Íhaldssamur maður kenningarinnar

Joseph Ratzinger fæddist í smábænum Markl am Inn syðst í Bæjaralandi þann 16. apríl 1927. Fjórtán ára gamall var hann skráður gegn vilja sínum í Hitlersæskuna, sem nasistar skylduðu alla þýska drengi til, en var fljótlega sleppt úr henni þar sem hann var þá þegar kominn á þá braut að læra til prests. Undir lok stríðins mannaði hann loftvarnabyssur við München eins og aðrir landar hans á sama aldri, en hann hafði ekki lokið grunnherþjálfun þegar ófriðurinn var úti. Innan kirkjunnar skiptast menn mjög í tvö horn í afstöðu til Ratzingers. Fylgismenn hans segja að reynsla hans af uppvexti í Þýskalandi nasismans hafi innrætt honum sannfæringu fyrir nauðsyn þess að kirkjan láti að sér kveða og kirkjan standi vörð um sín gömlu gildi. Gagnrýnendur hans segja hann standa fyrir harðlínustefnu innan kirkjunnar. Ratzinger hlaut prestsvígslu árið 1951, 24 ára gamall, og var strax 1953 orðinn háskólakennari í kaþólskri guðfræði. Hann átti farsælan feril sem guðfræðiprófessor í nokkrum þýskum háskólum uns hann var árið 1977 skipaður biskup í München og kardináli þremur mánuðum síðar. Jóhannes Páll II páfi kallaði Ratzinger til starfa í Páfagarði og árið1981 var hann orðinn yfirmaður trúarráðs kaþólsku kirkjunnar sem "vakir yfir kenningunni", en þetta er eitt allra áhrifamesta embættið í Páfagarði. Á þessum langa tíma í Róm hefur Ratzinger haft mótandi áhrif á stefnu kirkjunnar. Hann skapaði sér orðstír fyrir stranga íhaldssemi í útleggingu guðsorðsins, en jafnframt fyrir að vera skarpgreindur hugsuður. Hann og hinn pólski Jóhannes Páll II voru nánir bandamenn í íhaldssamri túlkun kenningarinnar, en meðal þess sem eftir samstarf þeirra liggur er kenningakver (svonefndur katekismi) kirkjunnar sem út kom árið 1992. Í því riti er rétttrúnaðarlínan lögð sem öllum kirkjunnar mönnum er ætlað að fara eftir. Ratzinger komst snemma upp á kant við meirihluta trúsystkina sinna í heimalandinu. Reyndar herma fregnir að svo til allir hinir þýsku kardinálarnir, sem sátu kjörfund páfa, hafi ekki viljað sjá þennan landa sinn á páfastóli. Nærri fimm aldir eru síðan Þjóðverji var síðast páfi. Margir rekja það til Ratzingers að frá Róm komu tilskipanir um að kaþólskum prestum í Þýskalandi væri bannað að veita þunguðum unglingsstúlkum ráðgjöf og um að kaþólskum unglingum skyldi ekki heimilt að fermast í sameiginlegri guðsþjónustu með lútherskum nágrönnum árið 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×