Sport

Sögulegt stórtap hjá Magdeburg

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Magdeburg voru teknir í kennslustund af Kiel í gærkvöldi þegar liðið tapaði 54-34 fyrir toppliðinu á útivelli, en Kiel er ógnarsterkt í ljónagryfunni heimafyrir. Þetta var hæsta markaskor í leik í sögu deildarinnar. Sigfús Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg í leiknum.

Gummersbach lagði Flensburg á útivelli 34-32 og skaust þar með í annað sæti deildarinnar. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk.

Wetzlar sigraði Nordhorn 25-22 og þar skoraði Róbert Sighvatsson fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×