Segir margar ríkar þjóðir hafa brugðist 26. október 2005 08:30 Piltur og stúlka sitja fyrir framan tjald í búðum sem komið hefur verið upp í Balakot í Pakistan sem varð mjög illa úti í skjálftanum. MYND/AP
Margar af ríkustu þjóðum heims hafa brugðist þegar kemur að því að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftans í Suður-Asíu sem varð fyrir tæpum þremur vikum. Þetta segja bresku hjálparsamtökin Oxfam og benda á að einungis hafi fengist loforð fyrir þriðjungi þess fjár sem Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram á vegna hamfaranna. Oxfam segir að Bandaríkjamenn, Japanar, Þjóðverjar og Ítalir hefðu ekki lagt sitt af mörkum og þá hefðu meðal annars Frakkar, Belgar, Austurríkismenn og Finnar ekki látið neitt af hendi rakna. Þá bentu hjálparsamtökin á að mikið fé vantaði í nýstofnaðan neyðarsjóð Sameiðuðu þjóðanna sem nota á þegar neyðarástand skapast einhvers staðar í heiminum, eins og nú er tilfellið í Pakistan. Aðeins hafa borist rúmlega tíu milljarðar króna af rúmlega sextíu milljörðum króna sem þjóðir heims hugðust leggja fram við stofnun sjóðsins. Þær þjóðir sem þegar hafa látið fjármuni og hjálpargögn renna til bágstaddra á hamfarasvæðunum funda í dag í Genf í Sviss þar sem reynt verður að afla meira fjár til hjálparstarfsins, en Sameinuðu þjóðirnar segja að dauðinn vofi yfir allt að átta hundruðu þúsund manns ef ekki berist meiri aðstoð frá þjóðum heims. Áætlað er að fimmtungur þeirra sem varð fyrir tjóni þegar skjálftinn reið yfir hafi enn enga hjálp fengið. Talið er að rúmlega 53 þúsund manns hafi látist í skjálftnum 8. október síðastliðinn, langflestir í pakistanska hluta Kasmír.
Erlent Fréttir Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Sjá meira