Pattstaða sennileg í Þýskalandi 16. september 2005 00:01
Svo virðist sem Þjóðverjar eigi afskaplega erfitt með að gera upp við sig hvað þeir vilji þegar að kjörkössunum er gengið í þingkosningunum sem fram fara á morgun, sunnudag. Í síðustu skoðanakönnununum sagðist fjórði hver kjósandi ekki vita enn hvaða flokk hann hygðist kjósa, eða hvort hann færi yfirleitt á kjörstað. Og af svörum þeirra sem þó segjast hafa gert upp hug sinn má helst ráða að þeir vilji að kristilegu flokkarnir taki við stjórnartaumunum - en að jafnaðarmaðurinn Gerhard Schröder verði áfram kanslari, frekar en áskorandinn Angela Merkel. Ljóst er að flestir Þjóðverjar líta svo á að jafnaðarmenn og græningjar skili ekki af sér góðu búi eftir sjö ár á valdastóli - efnahagsstöðnun, hallarekstur á ríkissjóði og vaxandi frekar en minnkandi atvinnuleysi er allt til vitnis um þetta. En margir eru engu sannfærðari um að stjórnarandstöðuflokkarnir myndu standa sig betur. Fyrst eftir að Schröder boðaði snemmsumars að kosið skyldi til þings strax í haust, ári áður en kjörtímabilinu átti annars að ljúka, var forskot stjórnarandstöðuflokkanna yfirgnæfandi í skoðanakönnunum. Kristilegu flokkarnir, CDU og systurflokkurinn CSU, mældust með allt að 49 prósenta fylgi þá en SPD með aðeins um 27 prósent. Eftir að kosningabaráttan fór formlega í gang í júlí var strax farið að draga aðeins saman með stóru flokkunum. Og eftir því sem nær dró kjördegi staðnaði fylgi kristilegra en í krafti kosningabaráttuhams kanslarans - ekki síst í sjónvarpseinvígi hans og áskorandans - mjakaðist fylgi SPD upp á við. En enginn vafi þykir leika á því að CDU/CSU verði langstærsti flokkurinn eftir kosningarnar. Öllu meiri vafi leikur hins vegar á því hvort samanlagður þingstyrkur hans og hins væntanlega stjórnarsamstarfsflokks, Frjálsra demókrata (FDP), dugi fyrir starfhæfum meirihluta. Samkvæmt síðustu könnunum fyrir helgina mældist samanlagt fylgi þessara flokka annars vegar, og SPD, Græningja og nýja Vinstriflokksins hins vegar, nákvæmlega jafn mikið, 48-49%. Það gæti hugsanlega dugað til að miðju-hægri-blokkin fengi nauman meirihluta. Það gæti hins vegar jafnauðveldlega farið þannig að Vinstriflokkurinn - kosningabandalag austur- og vestur-þýskra sósíalista sem allir flokkar hafa útilokað að eiga samstarf við - lenti í oddaaðstöðu. Slík úrslit myndu skapa algjöra pattstöðu sem að mati flestra stjórnmálaskýrenda væri sennilegast að leiddi til "stóru samsteypu", það er stjórnarsamstarfs stóru keppinautanna, SPD og CDU/CSU. Þótt talsmenn flokkanna hafi í kosningabaráttunni vísað þeim kosti afdráttarlaust á bug sýndu skoðanakannanir að yfir þriðjungur kjósenda teldi slíkt stjórnarmynstur "besta kostinn fyrir Þýskaland".
Erlent Fréttir Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Fleiri fréttir Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Sjá meira