Erlent

Naktir í nafni listarinnar

Fimmtán hundruð karlar og konur sviptu sig klæðum í Frakklandi í gær, allt í nafni listarinnar. Bandaríski listamaðurinn Spencer Tunick, sem áður hefur myndað fólk nakið í stórborgum eins og New York og Barcelona, stefndi fólkinu að hafnarsvæðinu í Lyon þar sem hann fékk það til að afklæðast og leggjast á jörðina. Tunick sagði staðinn sérstaklega valinn þar sem honum þætti landslagið þar sem árnar Són og Rón mætast alltaf minna sig á fótleggi kvenna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×