Sport

Grönholm með forystu á heimavelli

Finnski ökuþórinn Markus Grönholm á Peugeot hefur forystu í Finnlandsrallinu þegar 14 sérleiðir eru búnar. Grönholm er 21,6 sekúndum á undan Frakkanum Sebastian Loeb og mínútu á undan Eistanum Marrko Martin. Sebastian Loeb hafur yfirburðaforystu í keppni um heimsmeistaratitil ökumanna, er með 27 stiga forystu á Norðmanninn Petter Solberg. Grönholm, sem tvisvar hefur orðið heimsmeistari, 2000 og 2002, er í þriðja sæti í keppni um titilinn, 30 stigum á eftir Loeb.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×