FH-ingar í góðra liða hóp 25. maí 2005 00:01
FH-ingar eru sjöunda liðið í sögu tíu liða efstu deildar sem hefur fullt hús og sex mörk eða meira í plús eftir fyrstu tvær umferðir Íslandsmótsins. FH-ingar hafa byrjað Landsbankadeild karla með sannfærandi hætti í sumar. Hafnfirðingar hafa unnið báða leiki sína á útivelli og hafa fullt hús stiga og markatöluna 8-1 úr fyrstu tveimur leikjum sínum, sem báðir fóru fram á Suðurnesjum. Það má búast við því að hinum níu liðunum í deildinni sé ekki farið að lítast á blikuna enda eru nokkrir í leikmannahópi FH sem myndu labba inn í lykilhlutverk hjá flestum liðum deildarinnar en eru stundum jafnvel ekki í 16 manna hópi FH á leikdegi. FH-ingar eru sjöunda liðið í sögu tíu liða efstu deildar sem hefur náð slíkri draumabyrjun og öll hin sex hafa unnið titil á því tímabili. Fimm af þessum sex liðum hafa enn fremur orðið Íslandsmeistarar um haustið og tvö þeirra unnu tvöfalt á tímabilinu sem þau byrjuðu svona vel. Meðal þessarra liða eru Valsmenn frá 1978, sem töpuðu ekki deildarleik á tímabilinu, tvöfaldir meistarara Skagamanna sem unnu 20 leiki af 22 í deild og bikar og skoruðu 62 deildarmörk í 18 leikjum sumarið 1993 og svo Skagaliðið sem vann tvöfalt sumarið 1996. Hin þrjú liðin eru Íslandsmeistarar Valsmanna 1980, Íslandsmeistarar Framara 1990 og svo bikarmeistarar KR-inga 1994. Aðeins eitt þessara liða lék báða leiki sína á útivelli líkt og FH-liðið nú en KR-ingar byrjuðu Íslandsmótið 1994 með tveimur leikjum á útivelli, unnu 5-0 sigur á Breiðabliki á Kópavogsvelli í 1. umferð og sóttu síðan 2-0 sigur í Garðabæ þremur dögum síðar. James Bett, faðir Baldurs Bett, núverandi leikmanns FH, lék einmitt með KR-liðinu þetta sumar og skoraði meðal annars tvö mörk í fyrsta leiknum. Baldur kom inn á sem varamaður í Grindavík og skoraði þá fimmta og síðasta mark FH-liðsins í leiknum. KR-ingar unnu reyndar aðeins einn af næstu átta leikjum og enduðu í fimmta sætinu um haustið en öll hin liðin tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Þetta er líka í fyrsta sinn síðan 1990 sem lið sem nær svona frábærri byrjun á Íslandsmótinu er ekki undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar, en ÍA 1993, KR 1994 og ÍA 1996 voru öll undir hans stjórn. Ásgeir Elíasson var því síðastur á undan Guðjóni að taka Íslandsmótið með trompi í fyrstu tveimur umferðunum en Fram vann báða fyrstu leiki sína sumarið 1990, 4-0. Næst á dagskrá hjá FH er fyrsti heimaleikur sumarsins þegar Eyjamenn koma í heimsókn í Kaplakrikann en aðeins þrjú af umræddum sex liðum unnu þrjá fyrstu leiki tímabilsins; Valur 1978 og 1980 og ÍA 1993.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Körfubolti Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Handbolti Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Sýna puttann til stuðnings Kane Körfubolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Fleiri fréttir „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ „Ég vildi að hann væri skoskur“ Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Víkingar áfram eftir framlengda spennu Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Sýna puttann til stuðnings Kane Diljá með fimm mörk á tveimur vikum Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Kolbeinn snýr aftur til Köben í tuttugasta bardagann Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Besta sætið: Þreföld öryggisgæsla í Grindavík Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Venus verður sú elsta til að spila á Opna franska FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM „Við erum alltaf að gefa í“ Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi Sjá meira