Tíska og hönnun

Sexí sumarnærföt

Falleg undirföt eru prýði. Hver kona hefur sinn líkama og sinn smekk og því ber að velja þau af kostgæfni hvað varðar bæði liti og snið.

Nú streyma falleg sumarnærföt inn í undirfataverslanirnar. Pastellitir eru áberandi þar eins og annars staðar í tískunni, ljósfjólublátt, bleikt, blátt, grænt og beige er það sem ræður ferðinni í sumar.

G-strengir eru á hraðri útleið og efnismeiri buxur verða vinsælli, enda mun fallegri og þægilegri.

Smá brjóst eiga að njóta sín svo brjósthaldarar eru ekki eins bólstraðir og áður og sokkabönd koma sterk inn.

Ekki vanmeta undirfötin, verið vandlátar og veljið vel.

Pastelgrænt sett, haldari kr. 2.999, buxur kr. 1.999
Ljósbleikt sett, haldari kr. 3.499, buxur kr. 1.699, sokkabönd kr. 2.099
Ljósblátt sett, haldari kr. 3.299, buxur kr. 1.299





Fleiri fréttir

Sjá meira


×