Tíska og hönnun

Smátt mittismál Minouge

Poppprinsessan Kylie Minouge klæddist lífstykki á fyrstu tónleikum ShowGirls-tónleikaraðarinnar á dögunum. Athygli vakti að mittismál hennar í lífstykkinu var aðeins um fjörutíu sentímetrar á meðan meðal-mittismál breskra kvenna er tæplega 74 sentímetrar.

Hönnuðir búnings söngkonunnar eru John Galliano og Mr. Pearl. Sögur ganga að lífstykkið sé metið á 30 þúsund pund eða tæplega 3,5 milljónir íslenskra króna en það er alsett gimsteinum og því fylgir fjaðrahattur. Kylie kórónaði dressið með netsokkabuxum og silfursandölum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×