Tíska og hönnun

Stimpla sig inn

Fyrsta tískuvikan í Peking var haldin árið 1997 en þá voru aðeins þrjár tískusýningar. Síðan þá hefur tískusýningin sífellt verið að sækja í sig veðrið og er nú einn af hápunktum í tískudagatali þjóðarinnar. Í ár er rúmlega tylft af tískusýningum í vikunni ásamt fjölmörgum veislum þar sem hönnuðir og fólk í tískubransanum sýnir sig og sér aðra. Fata- og textílhönnuðir í Kína eru staðráðnir í því að stimpla sig rækilega inn í tískubransann í heiminum og hafa ekki látið sitt eftir liggja þegar þeir sýndu tískuna fyrir haust og vetur 2005 og 2006.

Fyrsta dag vikunnar var haldin alþjóðleg keppni fyrir unga hönnuði þar sem 37 ungir hönnuðir frá 23 löndum og héruðum frumsýndu hönnun sína við afskaplega fína athöfn.

En það er svartur blettur á tískuiðnaðinum í Kína. Alþjóðamarkaðir hafa áhyggjur af þessari tískuuppsveiflu í Kína og halda að fata- og textílhönnuðir frá Austurlöndum muni fylla markaðinn af ódýrum vörum með lágan gæðastaðal. Ríkisstjórnin viðurkennir þennan vanda og hefur reynt að leysa hann með því að hækka skatta á textílvörur og setja takmarkanir á framleiðslu tískuiðnaðarins.

Þetta vandamál setti aftur á móti ekki strik í reikninginn á tískuvikunni í Peking á dögunum þar sem litrík efni, flott form og öðruvísi hönnun en við Vesturlandabúar erum vanir gerði allt vitlaust og nokkuð víst að hönnuðir í Kína eiga eftir að láta mikið til sín taka á næstu árum, ef ekki mánuðum.

Flott hönnun í skærum litum sem var kynnt í keppni ungra hönnuða í síðustu viku.Mynd/AP
Mögnuð hönnun sem lætur fyrirsætuna líta út eins og persónu úr goðafræðinni. Þessi hönnun var liður í útskriftarsýningu hönnunardeildar við Peking-háskóla.Mynd/AP
Ekki beint efnismikið en flott er það.Mynd/AP





Fleiri fréttir

Sjá meira


×