Tíska og hönnun

Ljóst fyrir sumarið

Vorinu fylgir yfirleitt ljóst yfirbragð og árið í ár er þar engin undantekning, bæði í fatatískunni og förðuninni.

Andlitið skal vera ljóst yfirlitum, með örlítið af kopar eða gulli á augnlokum, fölbleikar kinnar og glansandi varir.

Mjúkir litir verða ráðandi í varaglosstískunni, apríkósuappelsínubleikt og fjólubleikt verður vinsælt og mjög fölar glansandi varir gera vel snyrt andlit enn fallegra.

Annars er allt leyfilegt í andlitsmálningu eins og annars staðar í tískunni, leyfið líðaninni að ráða ferðinni varðandi það, hvort vínrauða eða fölbleika varaglossið verður fyrir valinu og svo er ekki verra að eiga nokkra liti til skiptanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×