Tíska og hönnun

Kakan mulin yfir höfuð brúðarinnar

Hjá Grikkjum og Rómverjum til forna var brúðarvöndurinn þung blanda af hvítlauk og jurtum eða fræjum. Hvítlaukurinn átti að fæla frá illa anda og jurtirnar og fræin áttu að tryggja frjósamt samband milli brúðarinnar og brúðgumans. Í Póllandi til forna héldu menn að ef sykri væri stráð yfir brúðarvöndinn myndi skap brúðarinnar ávallt vera ljúft.

Annað sem hefur spilað stórt hlutverk í brúðkaupum er sjálf brúðartertan. Rómverjar til forna muldu köku yfir höfuð brúðarinnar sem átti að tákna frjósemi og gnægð. Í öðrum menningarheimum var hveitikornum, hveiti eða köku skellt á höfuð brúðarinnar og mylsnan borðuð til að öðlast heppni. Bretar bökuðu fullt af þurru kexi sem hver og einn gestur tók með sér heim eftir brúðkaupið.

Á miðöldum komu gestir með litlar kökur í veisluna og settu þær á borð. Brúðurin og brúðguminn reyndu síðan að kyssast yfir kökunni. Að lokum ákvað ungur bakari að setja allar þessar kökuhefðir saman í eina stóra með kremi og þannig varð brúðkaupstertan til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×