Tíska og hönnun

Lífið er þarna úti

Stofnendur Fat Face, Tim Slade og Jules Leaver, fjármögnuðu skíðaástríðu sína með því að selja áprentaða boli og flísfatnað upp úr bakpokum sínum á börum og í skíðaskálum. Þetta var seint á níunda áratugnum og nú er verslunarkeðjan löngu farin að blómstra í Frakklandi, Bretlandi og brátt á Íslandi. Með versluninni á Íslandi eru alls 94 verslanir Fat Face í heiminum öllum.

Einkunnarorð fyrirtækisins eru "Lífið er þarna úti" og hefur fyrirtækið klæðnað fyrir þá sem hafa gaman að því að vera úti í náttúrunni, hvort sem það er til að stunda skíði, brimbretti, siglingar, fjallaklifur eða hjólreiðar.

Við opnun nýju verslunarinnar í Kringlunni verða á boðstólum vor- og sumarföt fyrir karla, konur og krakka ásamt miklu úrvali af fylgihlutum. Fyrir karlmennina er boðið upp á pólóboli, langerma boli, útivistarbuxur og útilífsfatnað í heildstæðri línu. Fyrir konurnar er blanda af útsaumuðum pilsum og buxum með máluðum bletum og léttri prjónavöru sem og útivistarlínu.

Fat Face stendur einnig fyrir ýmsum útilífsviðburðum og á döfinni árið 2005 eru brimreið Fat Face á Bretlandseyjum, bátasýning í London og Southampton og skíðasýning í London svo eitthvað sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×