Tíska og hönnun

Hatar tískukreddur

Naomi Watts klæðir sig eins og hún vill.

Leikkonan Naomi Watts hefur það alltaf að takmarki að komast á lista yfir verst klæddu konurnar í Hollywood því á þeim lista eru allar frumlegu konurnar. Leikkonan hefur játað að hún vilji frekar blanda geði við konurnar í skrýtnu fötunum á frumsýningum og hátíðum heldur en glamúrdrottningar eins og vinkonu hennar Nicole Kidman.

"Ég hata tískufullkomnun. Fyrir mér er ekkert leiðinlegra. Ég sýni persónuleika minn þegar ég klæði mig. Mér fannst kjóllinn hennar Umu Thurman á Óskarnum 2004 rosalega flottur en fólk þurfti auðvitað að setja út á hann því hann var ekki "hefðbundinn" Óskarskjóll," segir Naomi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×