Erlent

London dýrasta borg heims

Dýrasta borg í heimi til að búa í er London, höfuðborg Englands. Þetta sýna útreikningar svissneska bankans UBS. Næstdýrast er að búa í New York, þá kemur Ósló, síðan Tókýó og Kaupmannahöfn er fimmta dýrasta borg heims. Ef íbúðar- eða húsaleigukostnaður er tekinn úr dæminu kemur í ljós að Ósló er dýrasta borg heims, Kaupmannahöfn er í öðru sæti, þá Tókýó, Zurich og London dettur þá niður í fimmta sæti. Ódýrustu stórborgir heims eru Buenos Aires, Karachi og Mumbay, sem áður hét Bombay.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×