Bush og Pútín funda í Slóvakíu 24. febrúar 2005 00:01
Búist er við hressilegum orðaskiptum á milli George Bush, Bandaríkjaforseta, og Vladimir Putins, forseta Rússlands, sem eru í þann mund að setjast niður til fundar í Slóvakíu. Bush heldur yfirreið sinni um Evrópu áfram og er nú komin til Bratislava í Slóvakíu. Hann ávarpaði almenning í morgun og sat fund með þarlendum stjórnvöldum. Allra augu beinast hins vegar að fundi Bush og Pútíns nú um hádegisbilið. Jafnvel er búist við einhvers konar uppgjöri á milli Bush og Pútíns sem hingað til hafa átt í ágætum samskiptum og verið góðir vinir. Breyting gæti orðið þar á og margt kemur til. Í fyrsta lagi hafa yfirvöld í Bandaríkjunum og reyndar víða í Evrópu líka haft miklar áhyggjur af vaxandi einræðistilburðum Pútíns sem hefur safnað að sér völdum og múlbundið fjölmiðla í landinu. Pútín stendur hins vegar fast á sínu og segist aðeins vera að aðlaga lýðræðishugmyndina að rússneskum veruleika, hefðum og sögu. Í öðru lagi eru Bandaríkin og Rússland á öndverðum meiði í mörgum utanríkismálum. Nægir að nefna Írak en málefni Írans vega hins vegar þyngst nú um stundir. Rússar hafa aðstoðað stjórnvöld í Íran við að reisa kjarnorkuver til raforkuframleiðslu sem Bandaríkjamenn segja að Íranir muni nota til að búa til kjarnorkuvopn. Mun fleiri deilumál hafa skotið upp kollinum. Rússar staðfestu til að mynda Kyoto-bókunina í andstöðu við Bandaríkjamenn og sem varð til þess að bókunin varð að alþjóðalögum í síðustu viku. Þá eru skoðanir skiptar um framgöngu Rússa í Tsjetsjeníu svo fátt eitt sé nefnt.
Erlent Fréttir Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi Sjá meira