Tugir látnir í árásum á moskur 18. febrúar 2005 00:01
Tugir liggja í valnum eftir árásir sem voru gerðar á að minnsta kosti tvær moskur sjítamúsíima í Bagdad í Írak í morgun. Shítar halda eina mikilvægustu trúarhátíð sína þessa dagana. Sjálfsmorðsárásarmaður drap 17 hið minnsta og særði 22 inni í sjítamosku í suðurhluta Bagdad í morgun. Sjónarvottar segja að árásarmaðurinn hafi borið sprengjubelti um sig miðjan og kveikt í þegar hann kom inn í moskuna. Árás var gerð á aðra mosku skömmu síðar og er talið að að minnsta kosti einn maður hafi látið þar lífið. Sjítamúslímar halda þessa dagana upp á Ashura sem er mikilvæg trúarhátíð til minningar um píslarvætti barnabarns Múhameðs spámanns. Hátíðin nær hápunkti á morgun og yfirvöld óttast að öfgahópar nýti tækifærið til árása. Á Ashura-hátíðinni á síðasta ári létu fleiri 180 manns lífið í árásum öfgamanna. Það eru öfgahópar súnníta sem standa á bak við þessar árásir á sjíta. Þeir höfðu undir stjórn Saddams Husseins töglin og hagldirnar í Írak en nú hafa sjítar náð völdum, en þeir eru bæði í meirihluta í landinu og unnu sigur í nýafstöðnum þingkosningum. Reynt er að koma til móts við þessa óánægju súnnímúslima með því að bjóða fulltrúum þeirra með í nýju ríkisstjórnina sem verið er að móta. Ibrahim al-Jaafari, sem fer fyrir bandalagi sjíta og er talið að verði næsti forsætisráðherra Íraks, segir að í ríkisstjórninni verði að vera fulltrúar allra helstu hópa í landinu, ekki bara sjíta heldur líka Kúrda og og súnníta þrátt fyrir að þeir hafi nær ekkert fylgi hlotið í nýafstöðnum kosningum.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Sjá meira