Mynda varnarbandalag 16. febrúar 2005 00:01
Íranar og Sýrlendingar hétu gagnkvæmum stuðningi gegn hugsanlegum ógnum. Bæði sæta ríkin þrýstingi af hálfu Bandaríkjanna; Íranar vegna kjarnorkuáætlunar sinnar og Sýrlendingar í kjölfar morðsins á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. "Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem Sýrlendingar standa frammi fyrir munu Íranar nýta reynslu sína, einkum af refsiaðgerðum, til hjálpar Sýrlendingum," sagði Mohammad Reza Aref, varaforseti Írans, eftir fund sinn með Mohammad Naji Otari, forsætisráðherra Sýrlands. "Við þessar viðkvæmu aðstæður er það ríkjunum nauðsynlegt að standa saman gegn margvíslegum hættum," sagði sýrlenski ráðherrann. Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt Sýrlendinga harðlega í kjölfar morðsins á Rafik Hariri. Sýrlendingar hafa fordæmt morðið og ekki hefur verið sýnt fram á hver réði hann af dögum en margir telja að sýrlensk stjórnvöld standi á bak við morðið. Bandaríski sendiherrann var kallaður heim frá Sýrlandi í fyrradag og var síðasta verk hans að afhenda þarlendum stjórnvöldum harðort bréf þar sem þau voru gagnrýnd vegna morðsins á Rafik Hariri, sem hafði gagnrýnt mjög veru sýrlenskra hersveita í Líbanon. "Beri Sýrlendingar ábyrgð á morðinu, sem væri pólitískt sjálfsmorð, myndi það vafalaust leiða til aukins þrýstings, refsiaðgerða og jafnvel þess að hervaldi yrði beitt gegn þeim," sagði Patrick Seale, breskur sérfræðingur í málefnum Sýrlands. Bæði ríkin hafa sætt gagnrýni bandarískra stjórnvalda fyrir að styðja við bakið á hryðjuverkamönnum. Helsta áhyggjuefni Bandaríkjamanna varðandi Írana snýr að kjarnorkuáætlun hinna síðarnefndu. Þó að Íranar segist aðeins ætla að nota kjarnorku í friðsamlegum tilgangi óttast margir, þar á meðal Bandaríkjamenn, Ísraelar og Evrópuþjóðir, að þeir hyggist koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira