Stríðinu er lokið 15. febrúar 2005 00:01
Bjartsýni ríkir nú fyrir botni Miðjarðarhafs um að friður sé loks í sjónmáli eftir vel heppnaðan fund Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, í síðustu viku. Ýmis erfið mál eru þó óleyst. Mahmoud Abbas var ómyrkur í máli í viðtali við dagblaðið The New York Times um helgina um stöðu og horfur í samskiptum Ísraelsmanna og Palestínumanna en þeir Ariel Sharon hittust í Sharm el Sheikh í Egyptalandi í liðinni viku. Abbas sagði að stríðinu við Ísraelsmenn væri lokið og gjörbreyting orðin á afstöðu Sharons í garð Palestínumanna. Þetta mætti sjá af áherslu hans á brottflutning landnema frá Gaza og Vesturbakkanum þrátt fyrir mikla andstöðu harðlínumanna. Sharon hefur fyrirskipað aðgerðir gegn ísraelskum öfgamönnum eftir að ráðherrum í ríkisstjórn hans var hótað vegna þessa. Sharon hefur boðað að frumvarp verði lagt fram í næstu viku á ísraelska þinginu um að landnemabyggðir á Gaza verði rýmdar. Palestínumenn munu á næstu vikum taka við stjórn Jeríkó og fjögurra annarra borga á Vesturbakkanum. Abbas kvaðst fagna samstarfsvilja Hamas og Jihad-samtakanna. Algert forgangsmál að hans mati er að palestínskir fangar verði látnir lausir úr ísraelskum fangelsum. 8.000 Palestínumenn eru í haldi Ísraelsmanna og segir Abbas að sakaruppgjöf þeirra sé mælikvarði á friðarvilja Ísraelsmanna. Á sunnudaginn lýstu ísraelsk stjórnvöld því yfir að 500 fangar yrðu senn látnir lausir. Enn á þó eftir að ræða erfið mál á borð við hugsanlega skiptingu Jerúsalemborgar, rétt palestínskra flóttamanna til að snúa aftur til heimkynna sinna og framtíðarlandamæli Palestínu en um öll þessi mál hefur ríkt verulegur ágreiningur. Samkvæmt svonefndum Vegvísi til friðar er gert ráð fyrir að Palestína verði sjálfstætt ríki áður en landamæri verða endanlega ákveðin. Þessu segist Abbas hins vegar andvígur, skilgreina verði landamærin áður en sjálfstæði verði lýst yfir.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira