Meiri réttur flugfarþega 17. febrúar 2005 00:01
Flugfarþegar eiga rétt á tugþúsunda króna greiðslum verði þeir af flugi fyrir verknað flugfélagsins sem þeir eiga bókað flug með. Þetta er hluti af nýjum reglum Evrópusambandsins um réttindi flugfarþega sem tóku gildi í gær. Meðal þess sem reglunum er stefnt gegn er yfirbókanir flugfélaga. Verði yfirbókanir til þess að farþegi komist ekki í flug sem hann á bókaðan miða í verður flugfélagið að greiða honum bætur, misjafnlega háar eftir því hversu langt ferðalag viðkomandi ætlaði í. Hámarksgreiðslan er nú tvöfalt hærri en áður. Flugfélögin eiga þó rétt á að reyna að leysa vandann með því að auglýsa eftir fólki sem er reiðubúið að breyta ferðaáætlun gegn því að fá auka flugmiða eða aðra þjónustu. Nýju reglurnar taka til alls flugs, hvort tveggja áætlanaflugs og leiguflugs, og lágfargjaldaflugfélaga jafnt sem annarra flugfélaga. Áður þurfti ekki að greiða bætur í leiguflugi, og ekki í áætlanaflugi ef flugi var aflýst. Talsmenn neytenda hafa fagnað nýju reglunum en viðbrögð forsvarsmanna flugfélaga eru blendnari. "Við verðum að tryggja að farþegar viti af þessum réttindum og notfæri sér þau," sagði Jim Murray, framkvæmdastjóri Samtaka evrópskra neytendasamtaka, í samtali við AP-fréttaþjónustuna. "Þetta er fáránleg löggjöf og við berjumst gegn þessu," sagði Michael Cawley, varaforstjóri Ryanair, í viðtali á útvarpsstöðinni BBC Radio 4. "Þetta hefur sáralítil áhrif hjá okkur," segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. "Við höfum í raun farið að þessum reglum á undanförnum árum, eða sambærilegum viðmiðunum," segir hann og býst ekki við miklum breytingum vegna nýju reglnanna. Almar Örn Hilmarsson, forstjóri Iceland Express, á ekki von á að þetta hafi stórkostleg áhrif á sitt félag. "Við fyrstu sýn sýnist mér þetta snúa meira að þeim vandamálum sem stóru gömlu flugfélögin hafa verið að glíma við, svo sem yfirbókanir," segir hann og tekur fram að slíkt gerist nánast aldrei hjá Iceland Express. Hann sagðist þó enn vera að kynna sér þetta og því gæti eitthvað breyst.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira