Vilja afsögn ríkisstjórnarinnar 17. febrúar 2005 00:01
Vaxandi þrýstingur hefur verið á ríkisstjórn Líbanons um að segja af sér. Stjórnin nýtur stuðnings stjórnvalda í Sýrlandi og hefur óánægja í garð hennar aukist eftir að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Rafik Hariri, var ráðinn af dögum. Talið er að hundruð þúsunda hafi minnst Hariris á götum Líbanons í gær og margar minningarathafnir snerust í gær upp í mótmæli gegn ráðamönnum í Damaskus. Líbönsk dagblöð segja í ritstjórnargreinum sínum í dag að mótmælin jafngildi þjóðaratvæðagreiðslu og niðurstaðan sé ljós: hernaðaríhlutun Sýrlendinga og afskiptum þeirra af stjórnmálum í Líbanon sé hafnað. Málsmetandi menn úr röðum trúar- og stjórnmálaleiðtoga virðast sammála um að tímabært sé að Sýrlendingar hverfi frá Líbanon. Gagnrýni Bandaríkjamanna og Frakka á sýrlensk stjórnvöld virðast kynda undir óánægju Líbana. Einn kristinn leiðtogi sagði að morðið á Hariri, sem var súnní-múslími, væri dæmigert fyrir einræðisstjórnir sem væru vanar að drepa alla gagnrýna umræðu með þessum hætti. Þó að Sýrlendingar séu grunaðir um að hafa skipulagt morðið á Hariri eru engar afgerandi sannanir sem benda til þess. Maður ók bíl upp að bílalest Hariris á mánudaginn var og sprengdi sig í loft upp eins og hryðjuverkamenn gera gjarnan í Írak. Leiðtogar Sýrlands hafa fordæmt morðið á Hariri.
Erlent Fréttir Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira