Mannréttindaráðherrann hættur 8. maí 2005 00:01
Enn og aftur er komið babb í bátinn í írösku stjórnarmynduninni. Þegar útlit var fyrir að skipað hefði verið í öll ráðherraembætti neitaði eitt ráðherraefnanna að taka við stöðu sinni. Íraksþing samþykkti í gær endanlegan ráðherralista Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra en samkvæmt honum fá súnníar fjögur ráðherraembætti til viðbótar við þau fjögur sem þeir þegar höfðu. Hina mikilvægu stöðu varnarmálaráðherra hreppti Saadoun al-Duleimi, sem áður vann í hinu alræmda öryggismálaráðuneyti Saddams Hussein en flúði svo til Sádi-Arabíu árið 1984. Hann er frá Anbar-héraði en þar hefur ólgan í landinu verið einna mest. Sjíar fá aftur á móti olíumálaráðuneytið og sest Ibrahim al-Uloum í þann stól. Í gær neitaði hins vegar súnníinn Hashim Abdul-Rahman al-Shibli að taka við stöðu mannréttindamálaráðherra þar sem hann vildi ekki fá embætti sitt út á það hvaða trúarhópi hann tilheyrði. Slíkar stöðuveitingar væru einungis til þess fallnar að breikka gjána á milli hinna ólíku hópa sem búa í landinu. Öll þessi togstreita þýðir að tíminn er að verða naumur fyrir ríkisstjórnina að semja stjórnarskrá en því á að vera lokið um miðjan ágúst.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Innlent Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Innlent Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Innlent Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Innlent Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Innlent „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ Innlent Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Innlent Vill að skýrslutaka Murdochs fari fram eins fljótt og hægt er Erlent Fleiri fréttir Vill að skýrslutaka Murdochs fari fram eins fljótt og hægt er Tóku tugi af lífi eftir að hafa fengið lausnarfé Elsti Gallagher-bróðirinn ákærður fyrir nauðgun Krísa yfirvofandi: Þurr svæði stækka og þorna hraðar Fækkar dögunum sem hann gaf Pútín: „Ég held ég viti þegar svarið“ Vara við hópeitrunum af völdum THC eftir atvik í fyrra Þrír látnir eftir að lest fór af sporinu Ætla að breyta heræfingum eftir skammir frá systur Kims Semja um vopnahlé 64 prósent myndu þiggja gjaldfrjáls þyngdarstjórnunarlyf Skotárás í Bangkok: Skaut fimm til bana og fyrirfór sér Deilur Repúblikana um Epstein-skjölin magnast enn Gera tíu klukkustunda „mannúðarhlé“ á árásum Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Sjá meira