Versta nóttin hingað til 6. nóvember 2005 14:00
Ekkert lát er á óeirðunum í Frakklandi. Þrettán hundruð bílar voru brenndir og kveikt var í skólum, verslunum, lögreglustöðvum og pósthúsum í nótt. Þetta er versta nótt óeirðanna til þessa, hin tíunda í röð. Þrátt fyrir mótmælagöngur íbúanna í hverfunum sem verst hafa orðið úti, þar sem þeir biðja um samræður við stjórnvöld og að óeirðaseggir láti af þessari hegðan, varð ástandið bara verra í gærkvöldi og í nótt. Lögregla handtók á fjórða hundrað brennuvarga, lögregluþyrlur sveimuðu yfir úthverfum Parísar og slökkvilið og lögregla þeystist borgarenda á milli til að handtaka mótmælendur og slökkva elda. Þetta átti reyndar ekki bara við um París, því fregnir hafa borist af viðlíka látum frá Strassburg, Tulouse og Nantes. Mótmælendur eru einnig farnir að færa sig nær miðborg Parísar og var til dæmis kveikt í fjórum bílum á Place de la Republique í miðborginni og fleirum í sautjánda hverfi. Verst var ástandið þó í Evreux í Normandí, um eitt hundrað kílómetra vestur af París. Þar var kveikt í tugum bíla, apóteki og verslunarmiðstöð og slösuðust að minnsta kosti átta manns þegar þeim lenti saman við brennuvargana. Staðreyndin er auðvitað sú að það eru þeir innflytjendur sem náð hafa að koma undir sig fótunum og eiga bíla og reka verslanir í hverfunum sem tapa mest á óeirðunum, því það eru þeirra eigur sem verið er að brenna. Leiðtogi múslima í París, Dalil Boubakeur, hefur kallað eftir sáttatóni frá stjórnvöldum, annars verði ekki séð fyrir endann á ólátunum. Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra heitir hins vegar þungum dómum yfir forsprökkum óeirðanna og segir að svona skrílsháttur verði ekki liðinn, hvað sem menn segja. Þegar ró verði komin á og glæpamenn dregnir fyrir dóm, fyrst þá verði hægt að fara að ræða um umbætur í hverfum innflytjenda og einhvers konar sáttagjörð við þennan hóp sem virðist vissulega hafi orðið útundan í kerfinu. Flestir brennuvarganna eru ungir menn af norður-afrískum uppruna, atvinnu-, menntunar-, og greinilega heldur vonlausir um framtíðina.
Erlent Fréttir Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Sjá meira