Fjör í 1.deildinni 29. maí 2005 00:01
Það var blóðug barátta á Akureyri í gær þegar erkifjendurnir í Þór og KA mættust. Hart var tekist á eins og venjulega og fengu tveir leikmenn Þórs að líta rauða spjaldið. Það nýttu KA-menn sér til fullnustu og þegar upp var staðið höfðu þeir niðurlægt Þórsarana, 6-1. KA-menn komust yfir strax á 12. mínútu með marki Húsvíkingsins Pálma Rafns Pálmasonar. Vendipunktur leiksins kom síðan á 37. mínútu þegar Egill Már Markússon dómari gaf Lárusi Orra Sigurðssyni beint rautt spjald fyrir háskalega tæklingu. Lárus Orri vissi upp á sig sökina og yfirgaf svæðið hávaðalaust. Þannig stóðu leikar í hálfleik en Þórsarar jöfnuðu óvænt í upphafi þess síðari úr vítaspyrnu. KA-menn voru fljótir að svara með öðru marki, einnig úr víti, og þegar Þórsarar misstu annan mann af velli var allur vindur úr þeim. KA-menn gengu á lagið og bættu við fjórum mörkum áður en Egill Már flautaði leikinn af. Í Víkinni var söguleg stund þegar reykvísku Víkingarnir tóku á móti Víkingunum frá Ólafsvík. Sá leikur var aldrei spennandi enda eru Reykjavíkur-Víkingar með mikið sterkara lið og þeir voru ekki í vandræðum með nafna sína frá Ólafsvík. Lokatölur 7-0 sem var síst of stór sigur. Nýliðar KS frá Siglufirði komu verulega á óvart á Kópavogsvelli með því að leggja HK að velli, 0-2. Sigur Siglfirðinga var sanngjarn og sannfærandi enda héldu þeir algjörlega aftur af sóknarleik heimamanna sem áttu eitt verulegt færi í leiknum. Það er ljóst að KS er með mun sterkara lið en menn töldu í fyrstu og verða þeir sýnd veiði en ekki gefin. HK heldur aftur á móti áfram að valda vonbrigðum en til mikils var ætlast af liðinu fyrir mótið. Völsungur frá Húsavík situr sem fastast á botni deildarinnar án stiga eftir 1-0 tap gegn Haukum. Það sem meira er þá hefur þeim ekki enn tekist að skora mark sem er ákaflega dapur árangur hjá Zorani Ljubicic og lærisveinum hans.
Íslenski boltinn Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Fleiri fréttir Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Egyptaland - Ísland | Annar íslenskur sigur í Kaíró? Besta sætið: Þreföld öryggisgæsla í Grindavík Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Venus verður sú elsta til að spila á Opna franska FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM „Við erum alltaf að gefa í“ Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Dagskráin í dag: Grindavík getur tryggt titilinn á heimavelli Kane sektaður en ekki settur í leikbann Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Óstöðvandi Sinner sló met Djokovic Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð „Ég tek fulla ábyrgð“ Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið Sjá meira