1.400 á hverja bensínstöð 22. apríl 2005 00:01
Þjónustustöðvum olíufélaganna hefur fjölgað nokkuð að undanförnu og nú er svo komið að það er ein bensínstöð fyrir hverja 1.418 Íslendinga. Í vikunni opnaði Atlantsolía sjálfsafgreiðslustöð fyrir dísilolíu á Akranesi og segir Hugi Hreiðarsson markaðsstjóri fyrirtækisins að þetta marki upphaf útrásar þess á landsbyggðinni. Á landsbyggðinni eru þó mun færri íbúar á hverja bensínstöð en á höfuðborgarsvæðinu, ein þjónustustöð frá olíufélögunum fyrir hverja 719 íbúa. Vestfirðir eru sá landshluti þar sem markaðurinn er einna þéttast setinn en þar eru 385 íbúar um hverja stöð en á Vesturlandi eru þeir tæplega 600. "Því fer fjarri að markaðurinn sé mettaður ef þjónustunni er komið fyrir á hagkvæman hátt," segir Hugi. Hann segir framgöngu Atlantsolíu vera fagnaðarefni fyrir neytendur. "Ef Atlantsolíu nyti ekki við væri verð á bensíni og dísilolíu um sex til átta krónum hærra og þetta er sparnaður fyrir þjóðfélagið upp á svona 600-800 milljónir króna," bætir hann við og segir frekari fjölgun stöðva vera í uppsiglingu. Með opnuninni á Akranesi lýkur 40 ára sögu þar sem einungis þrjú félög kepptu sín á milli á Vesturlandi. Margrét Guðmundsdóttir markaðsstjóri Skeljungs segir að mönnum þar lítist bara vel á samkeppnina en engra sérstakra viðbragða væri að vænta af þeirra hálfu. "Þó fari nú ein dísildæla upp á Akranes þá kallar það kannski ekki á stór viðbrögð. En við fylgjumst vel með öllum breytingum á markaðnum," segir Margrét. Hún bendir á að víðast í Evrópu er talið skynsamlegt að það séu 5.000 íbúar á stöð, þótt víðsvegar væru þeir 10.000. Hún er því afar ósammála Huga og segir að íslenski markaðurinn sé mjög mettur. Hún segir fjölgun bensínstöðva hér á landi vera þróun sem sé á skjön við það sem gerist í nágrannalöndunum en í Danmörku hefur til dæmis verið í umræðunni á síðustu mánuðum að fækka þeim um fjögur hundruð.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fleiri fréttir Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Sjá meira