Fundu genið sem ræður hörundslit fólks 17. desember 2005 19:45
Bandarískir vísindamenn segjast hafa fundið hluta gensins sem ræður því hvort fólk verði dökkt eða ljóst á hörund. Rannsóknin bendir líka til að mannkynið skiptist í kynþætt með öðrum hætti en talið hefur verið. Genið sem ræður því hvort menn verði svartir eða hvítir er einn af þremur milljörðum bókastafa í stafrófi lífs á jörðu segja vísindamenn sem hafa fundið hluta gensins. Genið fannst eftir ellefu ára rannsóknir á litbrigðum fiska en niðurstöðurnar má færa yfir á mannkynið segja vísindamennirnir. Þeir segja niðurstöðurnar geta haft mikil áhrif í lækningum á húðkrabbameini, rannsóknum á vettvangi glæps og jafnvel framleiðslu snyrtivara. Samskipti kynþátta og átök þeirra á milli í gegnum tíðina eru vísindamönnunum þó ofarlega í huga. "Það sem er mjög merkilegt við þetta er að við fundum að kynþáttahugsun sem er svo sterk byggist á einum bókstaf í leiðabók lífs okkar," segir Dr. Keith Cheng sem stýrði rannsókninni. Dr. Francis Collins hjá Genarannsóknastofnun Bandaríkjanna tók enn sterkar til orða: "Það sem við höfum gert er í raun að svipta hulunni af ráðgátunni um hörundslit, nokkuð sem við virðumst áður hafa lagt mjög mikla áherslu á, sennilega of mikla áherslu." Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að skipting mannkyns í kynþætti átti sér stað á annan hátt en í fyrstu var talið. Niðurstöðurnar gefa til kynna að litbrigði manna hafi fyrst breyst eftir fólksflutninga frá Afríku fyrir fimmtíu þúsund árum en ekki fyrir og að ljós húðlitur hafi þróast til að hjálpa fólki að meðtaka sólargeisla svo hlutfall D-vítamíns í líkamanum dragist ekki saman.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Erlent Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Innlent Fleiri fréttir Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Sjá meira