Rán tveggja kvenna veldur uppnámi 8. september 2004 00:01
Tveimur ítölskum konum, sem starfa fyrir hjálparsamtök í Írak, var rænt á skrifstofum samtakanna í gær. Málið hefur valdið miklu uppnámi á Ítalíu enda skammt síðan mannræningjar myrtu ítalskan fréttamann í Írak. Um tuttugu byssumenn ruddust inn á skrifstofur ítölsku hjálparsamtakanna, Brú til Bagdad, um miðjan dag í gær og rændu konunum sem báðar eru 29 ára gamlar. Starf þeirra í Bagdad fólst aðallega í því að sjá sjúkrahúsum fyrir hreinu vatni og súrefniskútum og aðstoða við uppbyggingu skóla í borginni. Auk kvennanna tveggja, voru tveir írakskir aðstoðarmenn hjálparsamtakanna teknir höndum. Byssumennirnir segjast tilheyra hópi sem kallar sig Ansar al-Zawahri og í orðsendingu frá þeim hóta þeir að þetta rán sé aðeins hið fyrsta af mörgum þar sem reynt verður að ræna ítölskum ríkisborgurum. Skemmst er að minnast þess að ítalskur fréttamaður, Enzo Baldoni, var myrtur af mannræningjum í Írak fyrir skömmu, eftir að ítölsk stjórnvöld höfðu þvertekið fyrir að verða við kröfum mannræningjanna um að draga herlið sitt út úr Írak. Ríkisstjórn Ítalíu hefur þungar áhyggjur af þessari þróun mála og hefur kallað saman neyðarfund með helstu stjórnmálaleiðtogum Ítalíu í dag. Almenningur á Ítalíu er reiður og krefst þess að yfirvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að leysa málið. Írakskir öfgahópar hafa rænt um 100 útlendingum í Írak frá því í mars á síðasta ári. Flestum hefur verið sleppt í kjölfarið en mannræningjar hafa þó tekið um 25 af lífi.
Erlent Fréttir Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Innlent Fleiri fréttir Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Sjá meira