5000 sinnum öflugri 26. desember 2004 00:01
Jarðskjálftinn við Súmötru varð vegna jarðflekahreyfinga. Ragnar Stefánsson jarðeðlisfræðingur segir að gífurleg orka leysist úr læðingi við slíkar aðstæður og geti flóðbylgjur sem myndast af þeim sökum borist þúsundir kílómetra. Hann telur enga hættu á slíkum skjálftum við Ísland. Jarðskjálftinn undan ströndum Súmötru varð í gærmorgun á þúsund kílómetra löngu misgengi en það er hluti af skjálftabelti sem teygir sig frá Indónesíu allt vestur að Miðjarðarhafi. Þarna gengur Indó-Ástralíuflekinn undir Evrasíuflekann með tilheyrandi umbrotum. Ragnar Stefánsson jarðeðlisfræðingur telur litlar líkur á fleiri stórum skjálftum á þessu stað í bili. Hins vegar kann skjálftinn í gær að auka líkur á skjálftum vestur eftir beltinu þar sem spenna er fyrir. Þannig má vera að stór skjálfti á Níkóbareyjum austur af Indlandi í gær tengist Súmötruskjálftanum. Þegar jarðskjálftar verða undir hafsbotninum við slík flekamót lyftist sjávarbotninn um nokkra metra eftir endilangri sprungunni og ryður frá sér ókjörum af sjó. Því mynduðust margra metra háar flóðbylgjur í kjölfar skjálftans með hræðilegum afleiðingum. Ragnar segir þessar bylgjur geta ferðast þúsundir kílómetra en þeim þverr krafturinn eftir því sem fjær dregur upptökunum. Sé litið til orkulosunar þá er Súmötruskjálftinn um 5000 sinnum meiri en Suðurlandsskjálftarnir árið 2000. Hins vegar er munurinn á áhrifunum ekki svo mikill að öðru leyti en því að svæðið sem varð fyrir miklu tjóni í Suðurlandsskjálftunum var margfalt minna en svæðið í skjálftanum í gær. Ragnar telur engar líkur á að slíkar hamfarir geti orðið hérlendis, því jarðskorpan hér er þynnri og bindur því minni orku. "Þunn spýta miðað við þykkan planka," segir hann.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira