Eyðilegging við Indlandshaf 26. desember 2004 00:01
Þúsundir manna fórust eftir að einn stærsti jarðskjálfti sögunnar reið yfir sunnanverða Asíu snemma í gærmorgun. Risavaxnar flóðbylgjur mynduðust í kjölfarið og ollu þær miklu tjóni á mönnum og munum. Vitað er um Íslendinga á skjálftasvæðunum en ekki er talið að nokkuð ami að þeim. Upptök skjálftans í gærmorgun voru skammt vestur af eyjunni Súmötru í Indónesíu en á þessum slóðum gengur svonefndur Indó-Ástralíufleki undir Evrasíuflekann með tilheyrandi umbrotum. Skjálftinn var 8,9 stig á Ricterkvarðanum og námu jarðskjálftamælar hann um allan heim, meðal annars hérlendis. Hefur skjálfti af þeirri stærðargráðu ekki mælst í um fjörtíu ár og aðeins eru dæmi um fjóra stærri skjálfta síðan mælingar hófust fyrir rúmri öld. Stærsti skjálfti sem mælst hefur varð við Chile árið 1960 en hann var 9,5 stig á Richter. Skjálftarnir í gær voru um 5000 sinnum öflugri en Suðurlandsskjálftarnir árið 2000 sem voru um 6,5 á Ricther. Við jarðskjálftann lyftist sjávarbotninn undir upptökunum þannig að gífurlegar flóðbylgjur mynduðust í kjölfarið. Sex metra háar öldurnar ferðuðust á ógnarhraða yfir Indlandshafið en brotnuðu svo á strandlengjum landanna beggja vegna Bengalflóa. Manntjón er talið mest á Sri Lanka en þar eru þúsundir sagðar hafa farist og margra er enn saknað. Líf í það minnsta einnar milljónar íbúa hefur færst verulega úr skorðum vegna hamfaranna. Svipað er uppi á teningnum á austurströnd Indlands þar sem vitað er að á þriðja þúsund manns týndu lífi. Á Maldíveyjum, eyjaklasa suður af Indlandi sem er um 2500 kílómetra frá upptökum skjálftans, varð mikið tjón vegna flóðanna en eyjarnar rísa hvergi hærra en 1,8 metra yfir sjávarmál. Strandhéruð þeirra landa sem næst eru skjálftaupptökunum, Taílands, Indónesíu og Malasíu, urðu sömuleiðis illa úti og þar er áætlað að þúsundir manna hafi farist. Talsvert er af erlendum ferðamönnum á skjálftasvæðunum og er fjölmargra saknað. Ekkert amar þó að Íslendingum sem eyða jólunum á þessum slóðum.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira