Meira en 10 þúsund hafa látist 26. desember 2004 00:01
Meira en tíuþúsund manns hafa látist í suður- og austurhluta Asíu í kjölfar öflugasta jarðskjálfta sem vart hefur orðið á jörðinni í fjörutíu ár. Skjálftinn mældist 8,9 á Richter og honum fylgdu gríðarlegar flóðbylgjur sem náðu allt að tíu metra hæð. Skjálftinn í morgun er sá fimmti öflugasti sem orðið hefur í heiminum síðan árið 1900 og sá öflugasti sem vart hefur orðið í heil fjörutíu ár, eða allt síðan skjálfti upp á 9,2 á Richter skók strendur Alaska árið 1964. Skjálftanum, sem mældist 8,9 á Richter, fylgdu minnst sex eftirskjálftar, þar af einn sem mældist yfir sjö á Richter. Á eftir fylgdu gríðarlegar flóðbylgjur, sem líklega náðu yfir tíu metra hæð. Upptök skjálftans voru við Eynna Súmötru á Indónesíu, þar sem Evrasíuflekinn svokallaði og Indlandsflekinn mætast. Þrýstingur Indlandsflekans undir Evrasíuflekann hrundi af stað flóðbylgjum, sem skullu á ströndum Indlands, Indónesíu og Sri Lanka í morgun og ollu þar gríðarlegri eyðileggingu. Flóðbylgnanna í kjölfar skjálftans hefur síðan orðið vart allt til Oman við Persaflóa og ekki er útilokað að þær hafi náð alla leið til Sómalíu í Afríku. Verst er ástandið á Sri Lanka, þar sem flóðbylgjur skullu eftir endilangri strandlengju landsins. Þar hafa að minnsta kosti 4200 manns látist í kjölfar skjálftans og meira en milljón manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Á Indlandi hafa yfir 2300 manns látist af völdum flóðanna og á Indónesíu hafa yfir fjögur þúsund fallið í valinn. Töluverður hluti hinna látnu eru sjómenn sem voru að störfum þegar skjálftinn brast á. Á Tælandi hafa yfir þrjú hundruð manns látið lífið og meira en fimm þúsund eru slasaðir. Þá voru meira en tíu þúsund manns fluttir frá suðurhluta Tælands í morgun, vegna hættu á frekari flóðbylgjum á svæðinu. Í Malasíu er hundruða manna saknað og staðfest er að um þrjátíu hafa látist. Á Maldaví-eyjum, sem eru suðvestur af Sri Lanka, eru tveir þriðju höfuðborgarinnar undir vatni en þaðan hafa ekki borist opinberar fregnir af mannfalli, en ljóst er að eyjarnar hafa orðið illa úti, enda víðast hvar ekki nema rúmur meter yfir sjávarmáli. Þúsunda manna er enn saknað á því svæði sem varð fyrir flóðbylgjum og nær öruggt má telja að tala látinna eigi eftir að hækka verulega, enda opinberar tölur yfirvalda um mannfall oft á tíðum minni en raunin reynist. Eins er í mörgum tilvikum hreinlega mjög erfitt að komast að þeim stöðum sem verst urðu úti og því ekki öll kurl komin til grafar enn sem komið er. Skjálftans í dag varð vart á jarðskjálftamælum hér á landi, enda verður skjálfta af þessari stærðargráðu jafnan vart um allan heim. Það þarf kannski ekki að koma á óvart að Suðurlandsskjálftinn árið 2000 verður býsna smár í samanburðinum. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir að skjálftinn í dag sé um þrjú þúsund sinnum stærri en skjálftinn á Íslandi árið 2000.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Fleiri fréttir „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Sjá meira