Hátt í 7000 hafa látist 26. desember 2004 00:01
Að minnsta kosti 6600 manns hafa farist í suðurhluta Asíu eftir hinn gríðarstóra jarðskjálfta sem gekk þar yfir í morgun, að sögn Sky-fréttastofunnar. Skjálftinn, sem varð um klukkan átta í morgun er sá öflugasti sem orðið hefur vart á jörðinni í fjörutíu ár og sá fimmti öflugasti síðan árið 1900. Upptök skjálftans, sem mældist 8,9 á Richter, voru nálægt eyjunni Sumatra á Indónesíu. Hann varð neðan sjávar og minnst sex eftirskjálftar urðu í kjölfarið, þar af einn sem mældist yfir sjö á richter. Á eftir fylgdu gríðarlegar flóðbylgjur, sem líklega náðu yfir tíu metra hæð. Flóðbylgjurnar hafa skollið á ströndum Indlands, Indónesíu og Sri Lanka í morgun og valdið þar gríðarlegri eyðileggingu. Tölur af mannfalli eru misvísandi og það eitt er öruggt að þær eiga eftir að hækka. Þó er vitað að vel á fjórða þúsund manns hafa fallið í valinn. Verst er ástandið á Sri Lanka, þar sem flóðbylgjur skullu eftir endilangri strandlengju landsins. Þar hafa að minnsta kosti 2500 manns látist í kjölfar skjálftans. Ljóst er að líf meira en milljón manna hefur færst úr skorðum vegna áhrifa skjálftans á Sri Lanka, þar sem um tuttugu milljónir manna búa. Á Indlandi hafa yfir 1600 manns látist og á Indónesíu hafa meira en 1500 fallið í valinn. Þá er mörg hundruð sjómanna frá löndunum tveim saknað í kjölfar skjálftans. Á Thailandi hafa yfir tvö hundruð manns látist og meira en þúsund eru slasaðir. Þá hafa meira en tíu þúsund manns verið fluttir frá suðurhluta Thailands, vegna hættu á frekari flóðbylgjum á svæðinu. Í Malasíu er hundruða manna saknað og staðfest er að um tuttugu hafa látist. Á Maldaví-eyjum, sem eru suðvestur af Sri Lanka, eru tveir þriðju höfuðborgarinnar undir vatni en þaðan hafa ekki borist fregnir af mannfalli. Þegar hefur verið lýst yfir neyðarástandi í löndunum sem orðið hafa fyrir flóðbylgjunum og óskað eftir hjálp alþjóðasamfélagsins. Þar sem fjarskiptin eru víða slæm og flugvellir ónothæfir vegna gríðarlegs vatnselgs, er hins vegar óttast að framkvæmd hjálparstarfs verði með erfiðara móti. Í mörgum löndum er söfnun vegna þeirra sem beðið hafa skaða vegna hörmunganna þegar hafin. Frá Páfagarði hefur borist beiðni til alþjóðasamfélagsins um að bregðast við hörmungunum. Jóhannes Páll Páfi annar, segir að fréttirnar frá Asíu varpi skugga á hátíðarhöld vegna jólanna um allan heim og hvetur hann alla þá sem vettlingi geta valdið til þess að leggja sitt lóð á vogarskálarnar.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira