23.500 látnir á hamfarasvæðunum 27. desember 2004 00:01
23.500 manns hafa látist í kjölfar jarðskjálftans í Suðaustur-Asíu í gær samkvæmt Sky-sjónvarpsstöðinni. Mannfallið er mest á Sri Lanka en þar eru rúmlega 10 þúsund manns taldir af. Vitað er um a.m.k. fimm Norðmenn, þrjá Dani og tvo Svía sem létust í hamförunum. Fréttastofa Bylgjunnar náði fyrir stundu tali af Konráð Magnússyni sem var ásamt konu sinni og yfir 200 manns kominn um borð í flugvél á Maldív-eyjum þegar ósköpin dundu yfir. Farþegum var skipað að yfirgefa vélina í skyndingu og halda inn í flugstöðina og síðan varð allt um flotið og hálfs metra djúpt vatn varð á flugbrautinni. Þegar vatnið sjatnaði tók það stórvirkar vinnuvélar átta klukkustundir að hreinsa eina flugbraut þannig að vélar á vellinum kæmust á brott. Konráð er nú á Sri Lanka á svæði sem ekki varð fyrir barðinu á hamförunum en í næsta nágrenni fórust nokkur þúsund manns. Eins og áður sagði varð Sri Lanka verst úti í hörmungunum. Skjálftinn og flóðbylgjurnar sem hann olli eru mestu náttúruhamfarir á þessari öld. Búast má við því að tala látinna haldi áfram að hækka. Hundruð þúsundir manna hafa misst heimili sín og óttast menn nú að hungursneyð og farsóttir kunni að brjótast út á svæðinu. Alþjóðlegt hjálparstarf hófst strax í gær á hamfarasvæðinum en svæðin eru mjög fjölmenn. Hermenn og hjálparstarfsmenn vinna hörðum höndum að því að hlúa að slösuðum á svæðunum og eru spítalar yfirfullir af fólki. Skjálftinn átti upptök sín skammt vestur af eyjunni Súmötru í Indónesíu. Á þeim slóðum mætast jarðflekar þar sem svonefndur Indó-Ástralíufleki gengur undir Evrasíuflekann með tilheyrandi umbrotum. Skjálftinn var 8,9 stig á Richter-kvarða og námu jarðskjálftamælar hann um allan heim, meðal annars hér á landi. Við jarðskjálftann lyftist sjávarbotninn þannig að gífurlegar flóðbylgjur mynduðust og fóru um sex metra háar, sumar allt að tíu metrar, á ógnarhraða yfir Indlandshaf. Þær brotnuðu svo á strandlengjum landanna beggja vegna Bengalflóa. Í Indónesíu, Sri Lanka og á Indlandi skoluðust heilu þorpin á braut, sóldýrkendur bárust á haf út og snorkkafarar lömdust yfir kóralrif í túristalendum Taílands. Á Maldív-eyjum, eyjaklasa suður af Indlandi sem er um 2.500 kílómetra frá upptökum skjálftans, varð mikið tjón en eyjarnar rísa hvergi hærra en 1,8 metra yfir sjávarmál. Neyðarvakt var komið á í utanríkisráðuneytinu í gær vegna íslensks ferðafólks sem er á ferð í Asíu og setti fjöldi ættingja sig í samband við ráðuneytið til þess að spyrjast fyrir um afdrif Íslendinga sem staddir eru á hamfarasvæðunum. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi skaðast í flóðunum, en í gærkvöld hafði þó ekki náðst í nokkurn hóp fólks ennþá. Á lista ráðuneytisins yfir Íslendinga á þessum slóðum voru um 65 manns. Símasamband við hamfarasvæðin var stopult, en í utanríkisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að reynt yrði að aðstoða fólk eftir megni í gegnum ræðismenn á viðkomandi stöðum eða norrænu utanríkisþjónustuna. Fregnir bárust þó af því að stöku ferðamenn hafi verið hætt komnir og mörgum var mjög brugðið. Talsvert er af erlendum ferðamönnum á skjálftasvæðunum og er fjölmargra saknað.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira