Erlent

31 Íslendings enn saknað

Engar fregnir hafa enn borist af þrjátíu og einum Íslendingi sem vitað var að voru á þeim svæðum sem hamfarirnar gengu yfir í Suðaustur-Asíu í gær. Ekkert var vitað um afdrif 39 Íslendinga um hádegisbilið en átta hafa látið vita af sér nú síðdegis. Tala látinna vegna hamfaranna er nú komin yfir 23 þúsund. Fjölmargir Evrópubúar eru á meðal hinna látnu, til að mynda ellefu Ítalir, að minnsta kosti tíu Svíar, fjórir Bretar og þrír Frakkar. Rauði kross Íslands verður með fund klukkan 20.30 í kvöld fyrir þá sem hafa áhyggjur af erlendum ríkisborgurum á flóðasvæðunum í Asíu. Á fundinum verður sagt frá náttúruhamförunum og fólki sem ekki hefur tekist að hafa upp á ástvinum sínum verður gefinn kostur á að skrá nöfn þeirra hjá leitarþjónustu Rauða krossins. Fundurinn fer fram í húsakynnum Reykjavíkurdeildar Rauða krossins í KB-banka húsinu við Hlemm að Laugavegi 120. Túlkað verður á taílensku og ensku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×