Erlent

Konur megi verða keisarar

Næsti keisari japanska ríkisins verður hugsanlega kona en endurskoðun á reglum sem banna kvenkyns keisara stendur nú yfir. Enginn drengur hefur fæðst inn í japönsku keisarafjölskylduna síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Það getur því enginn tekið við keisaradæminu eftir að krónprinsinn Naruhito fellur frá nema reglunum verði breytt en þær voru settar eftir síðari heimsstyrjöldina. Átta konur hafa verið keisarar Japans í 1.500 ára sögu keisaradæmisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×